Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2012 Innviðaráðuneytið

Yfir 20.000 störf á Íslandi byggjast á flugi og tengdri starfsemi

Efnhagslegur ábati af flugtengdri starfsemi á Íslandi er margháttaður. Þannig skapar atvinnugreinin alls um 20.600 störf og þjóðhagsleg áhrif á verga landsframleiðslu eru kringum 12,9%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Oxford Economics um flugstarfsemi á Íslandi sem unnin var fyrir IATA, Alþjóðasamband flugfélaga.

Flug og margs konar afleidd starfsemi skapar yfir 20 þúsund störf á Íslandi.
Flug og margs konar afleidd starfsemi skapar yfir 20 þúsund störf á Íslandi.

Skýrslan var kynnt á morgunverðarfundi í dag sem Flugmálastjórn Íslands, Isavia ohf., Samtök ferðaþjónustunnar og Icelandair Group stóðu fyrir. Ísland er 56. landið sem Oxford Economics rannsakar með sama hætti og hagfræðingur IATA, Julie Perovic, kynnti niðurstöðurnar. Á síðari hluta fundarins ræddu efni hennar í pallborði þeir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Pétur K. Maack flugmálastjóri, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, og Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.

Í upphafi máls síns rakti Julie Perovic horfur í flugrekstri á alþjóðavísu á þessu ári. Kom fram að gert væri ráð fyrir kringum 4% aukningu í farþegaflugi en að fraktflutningar myndu standa í stað. Þá væri útlit fyrir að evrópsk flugfélög yrðu rekin með tapi á árinu svo og flugfélög í Afríku en í öðrum heimshlutum væri gert ráð fyrir hagnaði.

Fram kom hjá hagfræðingi IATA að góð tenging með flugsamgöngum við borgir í öðrum löndum væri undirstaða fyrir verslun og ferðaþjónustu og góðar og víðtækar flugsamgöngur gætu lagt grunn að fjárfestingum og nýjum hugmyndum í atvinnulífi. Hún sagði niðurstöður skýrslu Oxford Economics sýna að Íslendingar byggju við mestu flugtengingar við erlendar borgir miðað við flugstarfsemi í öðrum löndum og það myndi leiða til efnahagslegs ávinnings.

Flugfélög með bækistöðvar á Íslandi annast 78% flugsins
Í niðurstöðum sínum segir Oxford Economics að rannsóknin hafi leitt í ljós hversu geysilega mikilvægt loftflutningakerfi Íslands er fyrir fyrirtæki og efnahag landsins. Þjóðhagsleg áhrif byggjast að mestu leyti á starfsemi íslenskra flugfélaga. Flugfélög með bækistöðvar á Íslandi annist 78% af öllu farþega- og fraktflugi. Laun, hagnaður og skatttekjur sem stafa frá þessum flugfélögum flæða um íslenska hagkerfið með margfeldisáhrifum á þjóðartekjur og landsframleiðslu. Auk þess auki starfsemin samkeppnishæfni og markaðstækifæri atvinnulífsins í landinu. Efnahagslegur ábati Íslands af erlendum flugfélögum felst í velferð viðskiptavina og því hlutverki sem þessi flugfélög, líkt og þau innlendu, gegna með því að halda opnum samgönguleiðum milli Íslands og erlendra borga og markaða.

12,9% af heildarvinnuafli landsins árið 2010
Flugrekstur hefur veruleg áhrif á íslenskt efnahagslíf og stendur undir 6,6% af landsframleiðslu og 9.200 störfum, þ.e. 5,5% af vinnuafli landsins. Ef jafnframt er reiknað með framlagi greinarinnar til ferðaþjónustunnar hækka þessar tölur í 12,9% af landsframleiðslu og 20.600 störf, eða 12,3% af heildarvinnuafli landsins.

Þegar þessar tölur eru bornar saman við áhrif í öðrum Norðurlöndum kemur mikilvægið hér á landi enn betur í ljós. Í skýrslu Oxford Economics um Noreg kemur fram að framlag greinarinnar að meðtalinni ferðaþjónustunni er 2,6% af landsframleiðslu, í Svíþjóð er framlagið 3,9% og í Danmörku 2,3% af landsframleiðslu, en hér á landi 12,9% eins og áður var nefnt. Þá skapar greinin með sama hætti 2,1% af heildarvinnuafli í Noregi, 4,1% í Svíþjóð og 1,8% í Danmörku, en 12,3% hér á landi.

Einnig skiptir máli að framleiðni er mikil í þessum störfum. Árleg verðmætasköpun hvers starfsmanns í flugþjónustu á Íslandi er 16 milljónir króna. Það er u.þ.b. 1,7 sinnum meira en meðaltalið á Íslandi, sem er 9,2 milljónir króna.

Verulegar skatttekjur
Skatttekjur af flugrekstri eru verulegar. Flugrekstur íslenskra fyrirtækja skilaði 10,1 milljarði króna í beina skatta og launatengd gjöld. Áætlað er að 15,4 milljarðar króna til viðbótar renni í ríkissjóð gegnum aðfangakeðju greinarinnar og 9,5 milljarðar að auki frá neyslu starfsmanna í flugrekstrinum sjálfum og aðfangakeðju hans.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum