Hoppa yfir valmynd
11. maí 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Akureyri styrkt sem höfuðstaður norðurslóða

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að  hækka árleg fjárframlög ráðuneytisins til CAFF og PAME um 50%. Um er að ræða skrifstofur Norðurskautsráðsins sem hafa aðsetur á Akureyri. Ákvörðun ráðherra mun styrkja Akureyri sem höfuðstað norðurslóða og stuðla að því að Ísland verði áfram leiðandi afl í Norðurskautsráðinu.

„Málefni norðurslóða snerta hagsmuni Íslands með margvíslegum hætti. Við eigum að vera leiðandi afl á norðurskautinu og reyna eftir fremsta megni að verja hagsmuni okkar og ganga fram með góðu fordæmi, sér í lagi í umhverfismálum. CAFF og PAME vinna mikilvægt  vísinda- og ráðgefandi starf fyrir Norðurskautsráðið í málefnum hafsins og þar sem við hýsum þessar skrifstofur er mikilvægt að þær fái það fjármagn sem þörf er á til þess að starfsemin geti verið í fremstu röð“, segir Guðlaugur Þór.  

CAFF (Conservation of Arctic Flora and Fauna) og PAME (Protection of the Arctic Marine Environment) mynda stærsta setur vísinda og stefnumótandi ráðgjafar innan Norðurskautsráðsins utan Noregs og hafa hátt í hundrað verkefni á sinni könnu. Flest þeirra lúta að stefnumótun í málefnum hafsins og líffræðilegum fjölbreytileika þar sem hagsmunir Íslands eru ríkir í þessum efnum.

Rekstur beggja skrifstofa er fjármagnaður af aðildarlöndum Norðurskautsráðsins til jafns við Ísland, en umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið sér um fjármögnun fyrir Íslands hönd.  Fjárframlög til CAFF og PAME hafa lengi staðið í stað en í aðdraganda formennskutíðar Íslands í Norðurskautsráðinu jukust framlögin m.a. vegna framlaga frá utanríkisráðuneytinu.

Árið 2021 lækkuðu fjárframlögin niður í fyrra horf en utanríkisráðuneytið bætti það upp árið 2021. Þörf var á að koma fjármálum CAFF og PAME í fast horf í samræmi við reglur og viðmið Norðurskautsráðsins um fjármögnun þess og skrifstofa þeirra. Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur nú gert það með 50% aukningu í fjárframlögum.

Málefni Norðurslóða hafa á undanförnum árum fengið mikið pólitískt vægi og eru nú veigamikill þáttur í utanríkisstefnu Íslands. Tveggja ára formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu er nýlokið en Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þá var utanríkisráðherra fór með formennsku í ráðinu.

Þrátt fyrir erfiðar aðstæður á tímum heimsfaraldurs tókst vel til í formennskutíð Íslands í Norðurskautsráðinu. Þátttaka í ráðinu hefur lengi verið forgangsmál stjórnvalda og lagði Guðlaugur Þór sérstaka áherslu á málefni Norðurslóða í starfi sínu sem utanríkisráðherra og á leiðandi hlutverk Íslands sem formennskuríkis enda gafst þar gott tækifæri til þess að láta til sín taka á alþjóðlegum vettvangi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum