Hoppa yfir valmynd
8. maí 2025 Forsætisráðuneytið

Mál nr. 2/2025-Úrskurður

Mál nr. 2/2025

 

 

Úrskurður kærunefndar jafnréttismála

 

A

gegn

Barnavernd Reykjavíkur

 

Frávísun.

Málinu var vísað frá kærunefnd þar sem ekki lágu fyrir upplýsingar um hvernig háttsemi sú sem kæran beindist að tengdist þeim þáttum sem getið er um í 1. mgr. 16. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, og 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar.

  1. Á fundi kærunefndar jafnréttismála 8. maí 2025 er tekið fyrir mál nr. 2/2025 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
  2. Með kæru, dags. 9. janúar 2025, kærði A ákvörðun Barna­verndar Reykjavíkur, dags. 9. desember 2024, um að aðhafast ekki frekar vegna til­kynningar er varðaði son kæranda. Í kæru greinir að kærandi hafi kvartað yfir óviðunandi svefnaðstöðu sem syni hans væri búin hjá móður hans. Væri oft kalt í rýminu þannig að barnið þyrfti að sofa í úlpu. Kærandi hafi tilkynnt þetta til kærða sem hafi ákveðið að aðhafast ekki frekar í málinu. Með kæru fylgdi afrit svars kærða, dags. 9. desember 2024. Fyrir liggur að sonur kæranda er orðinn 18 ára.
  3. Af kæru að ráða virðist kærandi byggja á því að syni hans hafi verið mismunað á grund­velli kyns og aldurs með því að kærði hafi ákveðið að aðhafast ekki frekar vegna tilkynn­ingar kæranda um óviðunandi svefnaðstöðu barnsins. Kærandi nefnir jafnframt í kæru að velferð barna og unglinga skipti ekki máli þegar kemur að strákum.
  4. Með erindi kærunefndar, dags. 10. mars 2025, var óskað eftir nánari skýringum kæranda á efni kærunnar þar sem það væri að mati kærunefndar óljóst. Jafnframt var þess óskað að kærunni fylgdi rökstuðningur og þau sönnunargögn um málsatvik sem tiltæk væru. Þá var kæranda bent á að kærunefnd jafnréttismála tæki til meðferðar kærur sem til hennar væri beint eftir því sem mælt er fyrir um í lögum nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lögum nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, og lögum nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði. Óskaði kærunefnd jafnréttismála eftir því að kærandi uppfærði kæru sína og sendi nefndinni á nýjan leik.
  5. Með tölvupósti kærunefndar, dags. 1. apríl 2025, var erindið ítrekað. Var þar tekið fram að bærust ekki svör eða frekari gögn vegna kærunnar fyrir 16. apríl 2025 eða ef slíkar upplýsingar lægju ekki fyrir í málinu þegar það kæmi til úrskurðar hjá nefndinni kynni að koma til þess að nefndin þyrfti að vísa málinu frá, sbr. 1. mgr. 23. gr. reglugerðar nr. 1320/2024.

     

    NIÐURSTAÐA

     

  6. Af kæru má ráða að mál þetta snúi að því hvort kærði hafi brotið gegn lögum nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, og lögum nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, með því að aðhafast ekki vegna tilkynningar um óviðun­andi svefnaðstöðu sonar kæranda.
  7. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórn­sýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, þ.e. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, laga um jafna meðferð utan vinnumarkaðar og laga um jafna meðferð á vinnumarkaði. Lögin gilda m.a. um kærunefnd jafnréttismála. Sam­kvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint samkvæmt framansögðu og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna hafi verið brotin.
  8. Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 150/2020 kemur fram að markmið laganna sé að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynj­anna á öllum sviðum samfélagsins. Í 1. mgr. 16. gr. laganna kemur fram að hvers kyns mismunun á grundvelli kyns, hvort heldur bein eða óbein, sé óheimil.
  9. Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, kemur fram að lögin gildi um jafna meðferð einstaklinga á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnu­markaðar, óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. Í 2. gr. sömu laga kemur fram að markmið laganna sé að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, óháð þeim þáttum sem um geti í 1. mgr. 1. gr.
  10. Í 15. gr. laga nr. 85/2018 kemur fram að ef leiddar eru líkur að því að mismunun sam­kvæmt ákvæðum laganna hafi átt sér stað skuli sá sem er talinn hafa mismunað sýna fram á að ástæður þær sem lágu til grundvallar meðferðinni tengist ekki einhverjum þeim þáttum sem um getur í 1. mgr. 1. gr. laganna.
  11. Af kæru málsins verður ekki fyllilega ráðið hvort kærandi byggi á því að kærði hafi, með því að aðhafast ekki frekar á grundvelli tilkynningar kæranda, mismunað kæranda eða syni hans á grundvelli aldurs og kyns. Jafnvel þótt kærandi telji að ákvörðun kærða hafi falið í sér mismunun verða að liggja fyrir ítarlegri upplýsingar um það að hverjum mismunun beinist og sem tengjast þeim þáttum sem getið er um í 1. mgr. 16. gr. laga nr. 150/2020 og 1. mgr. 1. gr., sbr. 2. tölul. 3. gr., laga nr. 85/2018, til þess að kærunefnd geti tekið málið til meðferðar. Í máli þessu liggja ekki slíkar upplýsingar fyrir þrátt fyrir að kærunefnd hafi farið þess á leit við kæranda að bæta úr því.
  12. Að því virtu verður ekki hjá því komist að vísa málinu frá, sbr. og 1. mgr. 23. gr. reglugerðar nr. 1320/2024, um kærunefnd jafnréttismála.

 

Ú r s k u r ð a r o r ð

Máli þessu er vísað frá kærunefnd jafnréttismála.

 

Ari Karlsson

Andri Árnason

Maren Albertsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta