Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 231/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 231/2016

Föstudaginn 20. janúar 2017

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. júní 2016, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2016, annars vegar niðurstöðu endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2015 og hins vegar innheimtu ofgreiddra bóta.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða Tryggingastofnunar ríkisins á endurreikningi og uppgjöri tekjutengdra bóta ársins 2015 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 552.775 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu hennar með bréfi, dags. 21. júní 2016.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 23. júní 2016. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 2. júlí 2016, barst greinargerð Tryggingastofnunar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. júlí 2016. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

II. Sjónarmið kæranda

Með kæru fylgdi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2016, um niðurstöðu endurreiknings og uppgjör tekjutengdra bóta á árinu 2015 ásamt innheimtubréfi, dagsettu sama dag. Kærandi gerir ekki formlegar kröfur í málinu en af gögnum málsins má ráða að kærandi óski endurskoðunar á ákvörðunum Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2016.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærður sé endurreikningur og uppgjör á tekjutengdum bótum ársins 2015. Þá segir að í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga um tekjuskatt nr. 90/2003 varðandi hvað skuli teljast til tekna. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar kemur fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingstofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattayfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta framhjá tekjuupplýsingum sem fram koma í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Þá segir að kærandi hafi notið örorkulífeyris og tengdra greiðslna allt árið 2015. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 552.775 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu.

Þá segir að ástæða þess að endurkrafa hafi myndast í uppgjöri á hendur kæranda sé sú að þegar samkeyrsla við tekjuupplýsingar af skattframtali 2016 vegna tekjuársins 2015 hafði farið fram, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum á skattframtölum bótaþega lögum samkvæmt.

Kæranda hafi verið send tekjuáætlun vegna ársins 2015 með bréfi, dags. 14. janúar 2015, þar sem gert hafi verið ráð fyrir því að kærandi hefði 12.360 kr. í fjármagnstekjur á árinu og engar aðrar tekjur. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við tillögu Tryggingastofnunar. Við bótauppgjör ársins 2015 hafi komið í ljós að kærandi hefði verið með lægri fjármagnstekjur en gert hefði verið ráð fyrir eða 9.427 kr. en einnig hafi komið í ljós að lífeyrissjóðstekjur kæranda hafi verið 1.284.613 kr. en ekki hefði verið gert ráð fyrir þeim í tekjuáætlun kæranda. Þessi mismunur hafi leitt til þess að tekjutengdar greiðslur hafi verið ofgreiddar í bótaflokkunum tekjutryggingu, orlofs- og desemberuppbót og sérstakri uppbót til framfærslu.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagareiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2015 hafi verið sú að kærandi hafði fengið greitt á árinu 2.178.508 kr. en hefði átt að fá greitt 1.296.890 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 552.775 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Með vísan til ofanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

Þá vakti Tryggingastofnun ríkisins athygli kæranda í greinargerð sinni á möguleika hennar til að sækja um niðurfellingu á endurkröfunni á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009, en slík umsókn hafi ekki borist stofnuninni.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2015 og innheimtu ofgreiddra bóta.

Kærandi var örorkulífeyrisþegi á árinu 2015 og fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Á grundvelli 7. mgr. þeirrar lagagreinar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum.

Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur samkvæmt 55. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreiking og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Sá endurreikningur sem ágreiningur þessa máls snýst um leiddi í ljós að kærandi hefði fengið ofgreidda tekjutryggingu, orlofs- og desemberuppbót og sérstaka uppbót til framfærslu, samtals 881.618 kr. eða 552.775 kr. að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þessarar ofgreiðslu var sú að tekjuáætlun kæranda vegna ársins 2015 gerði eingöngu ráð fyrir 12.360 kr. í fjármagnstekjur á umræddu ári. Samkvæmt upplýsingum úr skattframtali kæranda vegna tekjuársins 2015 reyndust fjármagnstekjur kæranda vera 9.427 kr. og lífeyrissjóðstekjur 1.284.613 kr.

Samkvæmt framangreindu gerði kærandi ekki ráð fyrir neinum lífeyrissjóðtekjum á árinu 2015 en skattframtal 2016 vegna tekjuársins 2015 sýndi fram á 1.284.613 kr. í lífeyrissjóðstekjur. Einnig liggur fyrir að umræddur tekjustofn hefur áhrif á bótarétt en í 2. mgr. áðurnefndrar 16. gr. segir að til tekna samkvæmt III. kafla laganna teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt með undantekningum. Í II. kafla síðastnefndu laganna er fjallað um skattskyldar tekjur. Þar falla lífeyrissjóðstekjur undir 1. tölulið A-liðar 7. gr. Um óverulegan mun var að ræða á fjármagnstekjum kæranda í tekjuáætlun til lækkunar eins og gögn málsins bera með sér. Það er ábyrgð greiðsluþega sem nýtur tekjutengdra bóta að hafa gætur á því að tekjuáætlun sé rétt og í samræmi við þær tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári, sbr. áðurnefnda 39. gr. laga um almannatryggingar. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bótagreiðslur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta beri endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2015 og þá ákvörðun að krefja kæranda um endurgreiðslu þeirrar ofgreiðslu.

Eins og Tryggingastofnun ríkisins benti kæranda á í greinargerð sinni, telur úrskurðarnefnd velferðarmála rétt að vekja athygli kæranda einnig á því að hún getur lagt inn beiðni um niðurfellingu ofgreiðslukröfunnar til Tryggingastofnunar ríkisins á grundvelli undanþágu-ákvæðis 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, telji hún skilyrði ákvæðisins uppfyllt. Þar kemur fram að heimilt sé að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Þá skuli einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör vegna tekjutengdra bótagreiðslna A, á árinu 2015 og innheimtu ofgreiddra bóta eru staðfestar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum