Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2023 Forsætisráðuneytið

Opnað fyrir tilnefningar á verðlaunahafa jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur

  - myndMynd: Gunnar Elísson

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir verðlaunahafa jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur. Verðlaunin voru stofnuð í Reykjavík í maí síðastliðinn í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins.

Að verðlaununum standa Evrópuráðsþingið og ríkisstjórn Íslands og er ætlað að verðlauna einstakling eða samtök sem stuðla að eða styðja með framúrskarandi hætti við valdeflingu kvenna; hvort sem um er að ræða aðgerðir sem stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnari samfélagslegri þátttöku kvenna eða aðgerðir sem vekja athygli á ójafnri stöðu kvenna og hvetja til úrbóta.

Verðlaunin eru nefnd í höfuðið á Frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrstu konunni sem var kjörin þjóðarleiðtogi. Verðlaunaféð er 60.000 evrur og verða verðlaunin afhend í fyrsta sinn í júní á næsta ári í Strassborg í Frakklandi.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 15. febrúar 2024 á netfangið [email protected] en notast skal við sérstakt eyðublað. 

Eyðublað fyrir tilnefningar á verðlaunahafa jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur

Tilnefningar skulu vera undirritaðar af lágmarki 5 aðilum og skilað inn á annaðhvort ensku eða frönsku.

Forsætisráðuneytið hvetur öll til að senda inn tilnefningar um framúrskarandi einstaklinga eða samtök sem viðkomandi telja að eigi skilið að fá verðlaun fyrir framúrskarandi störf í þágu kynjajafnréttis.

Nánari upplýsingar um verðlaunin á vef Evrópuráðsþingsins

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum