Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 68/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 6. febrúar 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 68/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18010032

Beiðni […] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Þann 9. janúar 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. september 2017, um að taka umsókn […], fd. […], ríkisborgara […] (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 15. janúar 2018. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 21. janúar 2018. Vegna beiðni um frestun réttaráhrifa lagði kærandi fram greinargerð til kærunefndar 31. janúar 2018 ásamt fylgigögnum. Kærunefnd leggur þann skilning í erindi kæranda, dags. 31. janúar 2018, að hann óski þar jafnframt eftir endurupptöku málsins. Þann sama dag bárust kærunefnd upplýsingar frá Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda. Krafa kæranda um endurupptöku máls hans er byggð á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi lagði fram gögn varðandi andlega og líkamlega heilsu sína máli sínu til stuðnings.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Í athugasemdum við 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir:

Samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. á aðili rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef íþyngjandi ákvörðun um viðvarandi boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því ákvörðun var tekin. Ef atvik þau, sem talin voru réttlæta slíka ákvörðun, hafa breyst verulega er eðlilegt að aðili eigi rétt á því að málið sé tekið til meðferðar á ný og athugað hvort skilyrði séu fyrir því að fella ákvörðunina niður eða milda hana. Ákvæði þetta hefur náin tengsl við meðalhófsregluna í 12. gr.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir m.a. að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreindrar reglu og þess að kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 28. janúar 2017 og hefur dvalið samfellt hér á landi síðan er það mat kærunefndar að tilefni sé til þess að skoða mál kæranda aftur í ljósi breyttra aðstæðna sem uppi eru í málinu. Kærunefnd fellst því á að mál kæranda verði endurupptekið hjá nefndinni á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. laga um útlendinga.

Umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöld geta þó, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn á grundvelli 40. gr. við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum. Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Af 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur kærunefnd útlendingamála túlkað ákvæðið með þeim hætti að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis enda sé flutningurinn á ábyrgð stjórnvalda.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 28. janúar 2017 og er hann enn hér á landi. Kærandi hefur því verið hér á landi í meira en 12 mánuði og hefur ekki yfirgefið landið. Kærunefnd hefur farið yfir meðferð málsins fyrir stjórnvöldum, m.a. upplýsingar frá Útlendingastofnun, og verður kærandi ekki talinn bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknarinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þó svo að gögn málsins beri með sér að talsmaður kæranda hjá Rauða krossinum hafi ekki alltaf virt þá fresti sem gefnir voru til framlagningar gagna og hann ítrekað inntur eftir gögnum bæði hjá Útlendingastofnun og kærunefnd þá verður sá dráttur á málsmeðferð, í þessu tiltekna máli, ekki virtur kæranda í óhag. Skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga í máli kæranda er því uppfyllt.

Það er niðurstaða kærunefndar að endurupptaka mál kæranda. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar.  

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.

The Directorate of Immigration shall examine the merits of the applicant’s application for international protection in Iceland.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                     Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum