Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Willum Þór Þórsson tekinn við heilbrigðisráðuneytinu af Svandísi Svavarsdóttur

Willum Þór Þórsson nýr heilbrigðisráðherra og Svandís Svavarsdóttir - myndHeilbrigðisráðuneytið

Ráðherraskipti urðu í heilbrigðisráðuneytinu í morgun þegar Willum Þór Þórsson tók við embætti heilbrigðisráðherra af Svandísi Svavarsdóttur. Willum segir það mikla áskorun að taka við þeim stóru og mikilvægu verkefnum sem heyra undir ráðuneytið. Hann muni leggja sig allan fram í þeirri vinnu sem framundan er og taki stoltur við keflinu af Svandísi.

Nýr stjórnarsáttmáli annars ráðuneytis Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra var kynntur í gær. Í sáttmálanum er lögð áhersla á að horfa skuli á heilbrigði þjóðarinnar í víðu samhengi og að það séu sameiginlegir hagsmunir þjóðarinnar, efnahagslegir og félagslegir að lögð sé aukin áhersla á lýðheilsu, forvarnir og geðheilbrigðismál:

„Aðgangur allra að heilbrigðisþjónustu er réttlætismál. Mikilvægt er að heilbrigðiskerfið þjóni hverjum og einum og að tryggt sé með miðlægum biðlistum að þjónusta sé veitt innan skilgreinds biðtíma. Þróa verður heilbrigðiskerfið í takt við breytta samsetningu þjóðarinnar, mönnunarþörf og lífsstílssjúkdóma. Haldið verður áfram að draga úr greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu til að tryggja jafnt aðgengi.

Staða og hlutverk Landspítalans sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verður styrkt og sérstök áhersla lögð á að fylgja eftir uppbyggingu gjörgæslu og bráðadeildar. Heilbrigðisstofnanir verða styrktar til að tryggja að rétt þjónusta sé veitt á réttum stað og aðgengi jafnað um land allt.

Við ætlum að efla geðheilbrigðisþjónustu fyrir alla hópa samfélagsins, ekki síst börn og ungmenni. Geðheilsuteymi verða efld um land allt, áhrif notenda á þjónustuna aukin, forvarnir bættar og áhersla lögð á að veita fjölbreytta þjónustu sem er miðuð að ólíkum þörfum.“

  • Willum Þór Þórsson nýr heilbrigðisráðherra og Svandís Svavarsdóttir - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum