Hoppa yfir valmynd
4. maí 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Samið um geðheilbrigðisþjónustu á Sauðárkróki og Ísafirði

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag samninga um geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni í umdæmum Heilbrigðisstofnananna Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og á Sauðákróki. Samningarnir eru gerðir annars vegar við Heilbrigðisstofnunina í Ísafjarðarbæ, en hins vegar við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Samningarnir eru í samræmi við stefnu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni sem eiga við geðröskun að stríða bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti um land.

Í samningnum er miðað við að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað í heilbrigðisþjónustunni og að börn og ungmenni með geð- og hegðunarröskun og forráðamenn þeirra eigi þess kost að leita sér aðstoðar í grunnþjónustunni.

Með samningnum er Heilbrigðisstofnununum á Sauðárkróki og í Ísafjarðarbæ m.a. gert kleift að semja um farþjónustu við sérfræðinga og tryggja reglubundnar heimsóknir sérfræðinga til að sinna börnum á þessu sviði. Gengið er út frá því í samningnum að þjónustan sem veitt er geti falist í meðferð, fræðslu og ráðgjöf sérfræðinga í barnageðlækningum, sálfræði, uppeldisfræði, geðhjúkrun, þjónustu iðjuþjálfa eða félagsráðgjafa.

Gildistími samninganna er frá 1. janúar 2007 til 31. desember 2008 og fær Heilbrigðisstofnunin í Ísafjarðarbæ þrjár milljónir króna í ár og á næsta ári til að veita þjónustuna og Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki eina milljón króna hvort ár.

Samsvarandi samningar hafa áður verið gerðir við Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og eru samningarnir liður í að hrinda í framkvæmd stefnu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem kynnt var sl. haust.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum