Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 25/2020 úrskurður 21. apríl 2020

Mál nr. 25/2020                     Aðlögun kenninafns: Þorsteinsson

                                            

Hinn 21. apríl 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 25/2020.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 14. apríl 2020, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx og xxx um að sonur þeirra skuli vera kenndur til föður síns, Torstens, og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óska þau að kenninafn drengsins verði skráð í þjóðskrá Þorsteinsson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Þorsteinsson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum