Hoppa yfir valmynd
5. desember 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 571/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 5. desember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 571/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19090039

Kæra [...]

á ákvörðun   

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 17. september 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. ágúst 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 1. apríl 2019. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun til Hollands var þann 2. apríl 2019 send beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd til yfirvalda í Hollandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá hollenskum yfirvöldum, dags. 27. maí 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 30. ágúst 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 3. september 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 17. september 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 25. september 2019 ásamt fylgigagni. Kærunefnd bárust viðbótargögn þann 26. september og 4. desember 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að hollensk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Hollands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Hollands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun m.a. greint frá því að honum hafi verið rænt í heimaríki og verið beittur líkamlegu ofbeldi. Hafi kærandi einnig orðið fyrir miklum ofsóknum í heimaríki eftir að hafa skipt um trú. Kærandi hafi flúið til Hollands en þangað hafi einstaklingarnir sem hafi beitt hann ofbeldi í heimaríki elt hann. Kvaðst kærandi óttast þá og teldi sig ekki öruggan í Hollandi. Andleg heilsa hans sé slæm [...].

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Í fyrirliggjandi gögnum málsins sé m.a. ekkert sem bendi til þess að Útlendingastofnun hafi rannsakað einstaklingsbundnar aðstæður kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar segi að löggæslumálum sé stýrt með árangursríkum hætti í Hollandi en kærandi telji varhugavert að halda slíku fram, þ. á m. vegna þess að erlendur fjölmiðill hafi greint frá spillingu innan lögreglunnar þar í landi í júlí sl. sem hafi m.a. leitt til fjölda uppsagna innan lögreglunnar. Mótmæli kærandi þá því að honum muni standa til boða fullnægjandi og aðgengileg heilbrigðisþjónusta í Hollandi [...]. Telji kærandi því ekki forsvaranlegt að senda hann aftur til Hollands sökum andlegrar heilsu. Kærandi vísi að auki til þess að stefna Hollands í málefnum flóttamanna hafi sætt gagnrýni fyrir að þykja óþarflega hörð og þá hafi fjöldi innflytjenda í varðhaldsmiðstöðvum aukist á undanförnum árum þar í landi.

Kærandi byggir á því að íslenskum stjórnvöldum beri að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar þar sem sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum og fyrri úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Telji kærandi margt benda til þess að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, m.a. vegna þess að [...] jafnframt sem hann [...]. Þá vísar kærandi í atburði sem hann hafi upplifað í heimaríki sem áður hefur verið greint frá og [...], sem hann telji renna stoðum undir málsástæðu hans um að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Að mati kæranda hafi Útlendingastofnun ekki sinnt þeirri rannsóknarskyldu sem á henni hvílir þar sem hún hafi ekki látið framkvæma sálfræðimat á honum, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Hollands á umsókn kæranda er byggð á 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun til Hollands. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja hollensk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á fertugsaldri. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann hafi mátt þola líkamlegt ofbeldi í heimaríki og glími við tiltekna andlega erfiðleika. Samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum frá Göngudeild sóttvarna liggur fyrir að [...]. Kærandi hafi þá [...]. Þá kemur fram að kærandi hafi leitað sér læknisaðstoðar vegna [...].

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn, beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Hollandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Hollandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: The Netherlands (European Council on Refugees and Exiles, 26. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Netherlands (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Freedom in the World 2019 - Netherlands (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • World Report 2019 - European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019);
  • 2018 Country Reports on Human Rights Practices - Netherlands (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Upplýsingar af vefsíðu hollenska öryggis- og dómsmálaráðuneytisins, (www.government.nl/topics/asylum-policy);
  • Upplýsingar af vefsíðu COA (The Central Agency for the Reception of Asylum Seekers, www.coa.nl/en) og
  • Upplýsingar af vefsíðu hollensku útlendingastofnunarinnar (www.ind.nl/en).

Í framangreindum skýrslum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Hollands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar þá býðst þeim að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd þegar við komu til landsins. Á Schiphol flugvelli í Hollandi er umsóknarmiðstöð (e. Application Centre) þar sem skráning umsókna um alþjóðlega vernd fer fram og er hún í höndum löggæsluyfirvalda (e. The Royal Military Police) þar í landi. Útlendingastofnun Hollands (h. Immigratie- en Naturalisatiedienst (IND)) ber ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Í hefðbundnu umsóknarferli fara umsækjendur um alþjóðlega vernd í tvö viðtöl, með aðstoð túlks sé talin þörf á því, áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra. Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá IND geta kært niðurstöðuna til héraðsdómstóls og þeim dómi er í kjölfarið unnt að áfrýja til Ríkisráðsins (h. Afdeling Bestuursrechtspraak Raad van State). Umsækjendum sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd eiga að auki möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn hjá IND. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjenda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að hollensk yfirvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Um leið og umsókn hefur verið tekin til meðferðar hjá útlendingastofnun Hollands eiga umsækjendur rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þar til ákvörðun hefur verið tekin í máli þeirra. Ákveði umsækjendur að bera synjun á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd undir dómstóla þá eiga þeir að auki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð á meðan áfrýjunarferlinu stendur. Uppfylli umsækjendur um alþjóðlega vernd ekki ákveðin skilyrði löggjafar um útlendinga í Hollandi, s.s. að geta sýnt fram á gild skilríki eða vegabréfsáritun sem heimili þeim inngöngu í landið eða að almenningi stafi ekki ógn af þeim, geta yfirvöld ákveðið að úrskurða þá í varðhald í ákveðinn tíma. Umsækjendur geta borið lögmæti varðhaldsúrskurðar undir dómstóla og eiga þeir jafnframt rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð í tengslum við það.

Holland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og fjárhagsleg aðstoð fyrir nauðsynlegum útgjöldum, s.s. matarinnkaupum, sé þörf á því. Eftir að skráningu umsóknar um alþjóðlega vernd lýkur eru umsækjendur fluttir í móttökumiðstöðvar þar sem þeir dvelja þar til þeir fá niðurstöðu úr umsókn þeirra. Hollensk yfirvöld ákváðu í mars 2018 að fækka plássum í móttökumiðstöðvum landsins úr 31.000 niður í 27.000. Í lok árs 2018 voru móttökumiðstöðvar í Hollandi nálægt því að vera fullnýttar en þó eru engin skráð tilvik þess efnis að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi ekki haft aðgengi að móttökumiðstöðvum vegna skorts á plássi.

Umsækjendur fá aðgang að atvinnumarkaðnum í Hollandi sex mánuðum eftir að umsókn um alþjóðlega vernd hefur verið lögð fram. Vinnuveitandi verður þó að sækja um atvinnuleyfi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd áður en þeir geta hafið störf og hefur það því reynst erfitt fyrir umsækjendur að finna sér störf. Öllum umsækjendum um alþjóðlega vernd er tryggt aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Við meðferð umsókna er að auki tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu. Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Hollandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hollandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Hollandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Framangreind gögn um aðstæður í Hollandi benda að auki til þess að kærandi hafi aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þá vísar kærunefnd til þess að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi komið fram að komi til flutnings kæranda myndi stofnunin miðla heilsufarsupplýsingum til Hollands, að fengnu undanfarandi samþykki hans.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur borið fyrir sig að hann óttist einstaklinga sem hafi elt hann til Hollands. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 13. júní 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 1. apríl 2019.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. að stofnunin hafi ekki framkvæmt heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans auk þess sem mat stofnunarinnar á aðstæðum í Hollandi eigi ekki við rök að styðjast þegar kemur að löggæslu- og heilbrigðismálum þar í landi. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 22. mars 2019 og sótti um alþjóðlega vernd þann 1. apríl s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Hollands innan tilskilins frests, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa hollensk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Hollands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.  

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                           Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum