Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2020

Sýningin „Hafið – Reflections of the Sea“ opnuð í Felleshus

Frá sýningunni Hafið í Felleshus - myndKasper Jenssen
Það var mikið um dýrðir í Felleshus, menningarmiðstöð norrænu sendiráðanna í Berlín, þegar sýningin „Hafið – Reflections of the Sea“ var opnuð þar í gærkvöld. Þar eru til sýnis listaverk á fjórða tug íslenskra listamanna sem á einn eða annan hátt eru tengd hafinu og vörur  frumkvöðla á sviði sjálfbærrar nýtingar sjávarafurða.
 
María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Þýskalandi, opnaði sýninguna ásamt sýningarstjóranum Evu Þengilsdóttur. Fólk gat nýtt sér tímann og skoðað allt það sem í boði var á sýningarsvæði hússins og þegar myrkva tók færðu gestir sig út á torgið á sendiráðasvæðinu til að skoða verk Finnboga Péturssonar. Í þessu einstaka verki er ljósi er endurkastað af öldum, sem myndaðar eru með hátölurum ofan í dökkleitu vatninu, yfir á granítklett sem fluttur var úr einum af fjörðum Noregs og prýðir nú norsku sendiráðsbygginguna. Viðstöddum gafst einnig kostur á á að horfa á myndina „KAF“ sem fjallar um Snorra Magnússon íþróttakennara og frumkvöðul í ungbarnasundi, svo fátt eitt sé nefnt.
 
Sýningin verður opin til 18. apríl á þessu ári en þar eiga verk margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar á sviði kvikmynda, myndlistar, bókmennta, tónlistar og hönnunar.
  • María Erla Marelsdóttir sendiherra - mynd
  • Eva Þengilsdóttir sýningarstjóri - mynd
  • Öldum varpað á granítklettinn á norsku sendiráðsbyggingunni - mynd
  • Sýningin „Hafið – Reflections of the Sea“ opnuð í Felleshus - mynd úr myndasafni númer 4
  • Sýningin „Hafið – Reflections of the Sea“ opnuð í Felleshus - mynd úr myndasafni númer 5
  • Sýningin „Hafið – Reflections of the Sea“ opnuð í Felleshus - mynd úr myndasafni númer 6

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum