Hoppa yfir valmynd
22. maí 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 45/2019 Úrskurður 22. maí 2019

Mál nr. 45/2019                    Millinafn:       Vatneyringur

 

 

 

Hinn 22. maí 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 45/2019 en erindið barst nefndinni 16. maí.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  1. Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  2. Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  3. Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á 1. lið skilyrðanna. Millinafnið Vatneyringur hefur nefnifallsendinguna -ur og fullnægir það þess vegna ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Vatneyringur er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum