Hoppa yfir valmynd
17. maí 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mælti fyrir þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun innflytjenda

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur mælt fyrir þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun innflytjenda á Alþingi. Í tillögunni er lagt til að ráðist verið í viðamikla stefnumótun í málaflokknum og að unnið verði að gerð grænbókar og í framhaldinu hvítbókar þar sem mörkuð er langtíma sýn í málefnum innflytjenda. Áhersla er á að sjónarmið fjölmenningar endurspeglist í allri stefnumótun, stjórnsýslu og þjónustu hins opinbera. Að virk þátttaka innflytjenda á öllum sviðum samfélagsins sé talin eðlileg, sjálfsögð og mikilvæg.

Þingsályktunartillagan byggir  á fimm megin stoðum um samfélag, fjölskyldu, menntun, vinnumarkað og flóttafólk. Undir hverri stoð eru lagðar til aðgerðir til að ná fram markmiðum hverrar stoðar. Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda snertir á flestum málefnum samfélagsins. Jöfn tækifæri til þátttöku eru lykill að farsælu samfélagi og með áætluninni er mörkuð leið á þeirri vegferð.

„Við höfum ekki hikað við að takast á við krefjandi verkefni. Ísland hefur þegar mótað sér stefnu um að taka á móti flóttafólki í sérstaklega viðkvæmri stöðu í gegnum störf Flóttamannanefndar. Í framkvæmdaáætlun er því lögð áhersla á að efla fræðslu um réttindi til þess hóps sem og fagfólks sem kemur að móttöku þeirra,“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í ræðu sinni.

„Jöfn tækifæri á vinnumarkaði eru mikilvægur liður í að styrkja stöðu innflytjenda á vinnumarkaði. Þar er mikilvægt að hið opinbera leiði með góðu fordæmi í ráðningum og því snýst ein af aðgerðunum um fjölgun innflytjenda í opinberum störfum. Að opinberar ráðningar endurspegli þá staðreynd að innflytjendur eru 15,5% landsmanna. Þá er jafnframt nauðsynlegt að endurskoða löggjöf um atvinnuréttindi útlendinga. Snýr sú endurskoðun meðal annars um að ákvæði er varða útgáfu dvalarleyfa á grundvelli atvinnuþátttöku verði rýmkuð og skilvirkni aukin. Þá verði tryggt að fólk sem fær dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið fái samhliða óbundið atvinnuleyfi,“ sagði Guðmundur Ingi einnig í ræðunni.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum