Hoppa yfir valmynd
18. júlí 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 55/2018 Úrskurður 18. júlí 2018

Mál nr. 55/2018                    Eiginnafn:     Álfmey (kvk.)

 

 

 

 

Hinn 18. júlí 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 55/2018, en erindið barst nefndinni 3. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Álfmey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Álfmeyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Álfmey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum