Hoppa yfir valmynd
9. október 2002 Dómsmálaráðuneytið

Auglýsing um kosningarrétt íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis

Íslenskir ríkisborgarar sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis hafa kosningarrétt hér á landi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag.

AUGLÝSING
um kosningarrétt íslenskra ríkisborgara
sem búsettir eru erlendis





Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa íslenskir ríkisborgarar sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis kosningarrétt hér á landi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Þeir eru því sjálfkrafa á kjörskrá þann tíma. Að þessum átta árum liðnum falla þeir af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að halda kosningarrétti.

Því þurfa þeir, sem vilja vera á kjörskrá, en fluttu af landi brott fyrir 1. desember 1994 og hafa verið búsettir erlendis síðan, að senda umsókn til Hagstofu Íslands fyrir 1. desember 2002, til þess að halda kosningarrétti. Kosningarrétturinn gildir til 1. desember 2006.

Kosningarréttinn þarf að endurnýja með nýrri umsókn eftir 1. desember ári áður en hann fellur niður

Umsókn skal senda Hagstofu Íslands en eyðublöð fást í sendiráðum Íslands erlendis, sendiræðisskrifstofum, skrifstofum kjörræðismanna og hjá fastanefndum við alþjóðastofnanir. Einnig er hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu Hagstofunnar og á heimasíðu hennar: http://www.hagstofa.is/

Umsækjandi verður sjálfur að undirrita umsókn sína.

Einungis þeir sem einhvern tíma hafa átt lögheimili á Íslandi geta haft kosningarrétt hér á landi. Kosningarrétturinn fellur niður ef íslenskur ríkisborgari gerist ríkisborgari í öðru ríki. Kosningarréttur miðast við 18 ára aldur. Reglur þessar gilda með sama hætti um kjör forseta Íslands en ekki um kosningar til sveitarstjórnar.

Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann síðast átti lögheimili á Íslandi samkvæmt þjóðskrá.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 8. október 2002.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum