Hoppa yfir valmynd
23. mars 2021 Utanríkisráðuneytið

Vatnsskortur hrjáir eitt af hverjum fimm börnum í heiminum

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Ný gögn frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, varpa ljósi á að vatnsskortur í heiminum er kominn á hættustig. Rúmlega 1,4 milljarðar manna, þar af yfir 450 milljónir barna í yfir 80 löndum, búa í dag á svæðum þar sem er mikill eða mjög mikill vatnsskortur. Þetta þýðir að eitt af hverjum fimm börnum í heiminum hefur ekki nóg vatn til að uppfylla daglegar þarfir sínar. Alþjóðadagur vatnsins var í gær, 22. mars.

„Öruggt drykkjarvatn er nauðsynlegt fyrir líf og heilsu barna og óhreint vatn getur valdið veikindum eða jafnvel dauða. Vatnsbornir sjúkdómar á borð við kóleru og niðurgangspestir draga árlega hundruð þúsunda barna til dauða á meðan önnur missa af skólagöngu þar sem þau þurfa að ganga langar vegalengdir á hverjum degi til að sækja vatn fyrir sig og fjölskyldur sínar. Þegar vatnsauðlindir minnka geta börn að sama skapi ekki þvegið hendur sínar til að verjast sjúkdómum,“ segir í frétt frá UNICEF.

Til að bregðast við vatnskrísu heimsins hefur UNICEF hleypt að stað nýju átaksverkefni, Water Security for All, til að virkja alþjóðasamfélagið og nýsköpunarfyrirtæki í að bregðast við ástandinu. Hægt er að kynna sér niðurstöður skýrslunnar hér.  

Vatnshreinsitöflur á sannargjafir.is

Innan við þrjú prósent af vatnsauðlindum heimsins eru ferskvatn sem verða sífellt af skornari skammti. Áratugir af ofnotkun vatns og mengun ferskvatnsbirgða hefur aukið álagið á vatnsból heimsins. Breytt úrkomumynstur og öfgar í veðurfari vegna hamfarahlýnunar hafa aukið vatnsskortinn enn frekar. Á sama tíma hefur þörfin fyrir vatn aukist vegna fólksfjölgunar, þéttbýlismyndunar og aukinnar eftirspurnar frá meðal annars landbúnaði, iðnaði og orkuframleiðslu. Engin merki eru um að slík eftirspurn minnki á næstu árum.

Skýrsla UNICEF beinir sjónum sínum sérstaklega að 37 „heitum reitum“ þar sem aðstæðurnar eru einna verstar fyrir börn og þar sem grípa þarf til aðgerða tafarlaust. Á þessum lista eru meðal annars Afganistan, Búrkína Fasó, Eþíópía, Haítí, Jemen, Kenía, Nígería, Níger og Pakistan. 

UNICEF útvegar hreint vatn á hverjum degi, á hamfarasvæðum, átakasvæðum og sem hluta af vatns- og hreinlætisverkefnum í yfir 90 löndum um allan heim. Áhersla er meðal annars lögð á að tryggja samfélögum og skólum hreinlætisaðstöðu og vatnsdælur, veita fræðslu um hreinlætisvenjur og útdeila vatnshreinsitöflum sem breyta óhreinu vatni í drykkjarhæft á örskotsstundu.

Á hverju ári hefur fólk á Íslandi brugðist við vatnsskorti barna um allan heim með því að gefa vatnshreinsitöflur í gegnum Sannar gjafir UNICEF. Í fyrra voru keyptar 958 þúsund vatnshreinsitöflur á Íslandi sem duga til að hreinsa tæplega 4,8 milljónir lítra af vatni!

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

6. Hreint vatn og hreint
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum