Hoppa yfir valmynd
4. janúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Rúmlega tíu milljónir barna við hungurmörk

Ljósmynd: UNICEF - mynd

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, óttast mjög um heilsu og velferð rúmlega tíu milljóna barna sem að óbreyttu draga fram lífið við hungurmörk á þessu ári í fimm heimshlutum, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, norðausturhluta Nígeríu, miðhluta Sahel-svæðisins – Búrkina Fasó, Níger og Malí, Suður Súdan og Jemen. Í öllum þessum ríkjum er mikil þörf á mannúðaraðstoð og síaukinn matvælaskortur, auk banvænnar farsóttar og yfirvofandi hungursneyðar.

„Fyrir þjóðir sem búa við afleiðingar stríðsátaka, hamfara og loftslagsbreytinga hefur COVID-19 breytt næringarskorti í yfirvofandi stórslys,“ segir Henrietta Fore framkvæmdastýra UNICEF í frétt frá samtökunum. „Fjölskyldur eru þegar í erfiðleikum með að fæða börnin sín og allir í fjölskyldunni lifa við hungurmörk. Við getum ekki látið þau vera gleymdu fórnarlömb ársins 2020.“

UNICEF hvetur alþjóðasamfélagið og mannúðarsamtök á vettvangi að auka stuðning við lífsnauðsynlega þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra í þessum heimshlutum og víðar þar sem þörf á aðhlynningu varðandi næringu, heilsu, vatn og hreinlæti.

UNICEF hefur kallað eftir rúmlega einum milljarði Bandaríkjadala til að styðja lífsbjargandi aðgerðir á þessu ári fyrir börn í þeim heimshlutum þar sem ástandið er alvarlegast.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum