Hoppa yfir valmynd
16. júní 2021 Forsætisráðuneytið

Mansal – aukin vernd þolenda, liðkað fyrir málsókn á hendur gerendum og ný upplýsingagátt

Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á ákvæði almennra hegningarlaga um mansal. Í lögunum felst meðal annars að treysta enn frekar vernd þolenda mansals, ekki síst kvenna og barna sem seld eru í vændi eða misnotuð kynferðislega með öðrum hætti. Jafnframt er skerpt á vernd einstaklinga sem hafa sætt vinnumansali og annarri hagnýtingu fólks í veikri stöðu með nauðungarvinnu, nauðungarþjónustu, þrælkun eða ánauð.

Með samþykki frumvarpsins hefur ákvæði almennra hegningarlaga um mansal verið uppfært í samræmi við lagaþróun á Norðurlöndum og alþjóðlega sáttmála. Þá er tryggt að íslensk stjórnvöld standi við þær skuldbindingar sem þau hafa tekist á hendur með því að fullgilda alþjóðlega samninga sem hafa það að markmiði að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi og mansali.

112 virkjar viðbragð gegn mansal

Til að fylgja eftir lagasetningunni hefur upplýsingum um mansal verið bætt á vefgátt Neyðarlínunnar 112.is gegn ofbeldi. Þar geta þolendur leitað sérhæfðrar hjálpar og ráðgjafar og aðrir aflað sér upplýsinga um einkenni mansals og leitað úrræða ef grunur er um að einstaklingur sé þolandi mansals.  Hægt er að fá samband við neyðarvörð sem virkjar viðbragð þeirra sem veita þolendum mansals aðstoð og leiðbeinir áfram til þeirra úrræða sem standa þolendum og öðrum til boða þegar kemur að mansali.

Má þar einna helst nefna samhæfingarmiðstöð um mansal í Bjarkarhlíð. Meginhlutverk hennar er að samræma verklag og viðbrögð þegar grunur leikur á mansali, m.a. með því að kalla til nauðsynlega fagaðila, auk þess að sinna forvörnum og fræðslu og stuðla að vitundarvakningu innan samfélagsins.  

Ráðgjafateymi lögreglunnar um mansal sett á stofn

Þá er unnið að stofnun ráðgjafateymis innan lögreglunnar undir forystu embættis ríkislögreglustjóra sem hefur það hlutverk að vera öllum lögregluembættum landsins til ráðgjafar þegar kemur að mansali, bæði hvað varðar greiningu mála sem og rannsókn. Þá hefur hópurinn það markmið að miðla reynslu og þekkingu til lögreglumanna og sækjenda á landinu öllu og halda utan um tölfræði og stöðuna um mansal í íslensku réttarvörslukerfi.

Markvisst unnið gegn mansali

Aðgerðirnar eru meðal annars árangur af vinnu samráðshóps stjórnvalda um mansal sem hefur unnið að því að innleiða áherslur stjórnvalda í aðgerðum gegn mansali og annars konar hagnýtingu. Áherslurnar voru fyrst kynntar í mars 2019 en komast nú til fullra framkvæmda.  

Nánar má fræðast um feril frumvarpsins og nefndarálit á vef Alþingis.

Upplýsingar um mansal á 112.is, 112.is/mansal

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra:

“Mansal er eitt alvarlegasta brot á mannréttindum sem fyrirfinnst. Gerandinn beitir blekkingum og þvingun til að viðhalda því ástandi að hagnýta aðra manneskju, oftast í fjárhagslegum tilgangi. Breyting á ákvæði almennra hegningarlaga liðkar fyrir því að mál er varða grun um mansal fái framgang innan réttarvörslukerfisins og gerendur sæti refsingu fyrir þessi alvarlegu brot. Með því treystum við enn frekar vernd þolenda mansals, ekki síst kvenna og barna.”

Tómas Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar:

„112 er nú fyrsti viðbragðsaðili fyrir tilkynningar um mansal á Íslandi. Mansal er alþjóðleg vá sem teygir anga sína til Íslands og hefur einna helst birst í okkar samfélagi í formi vinnumansals. Mansal er talsvert algengara en við höldum. Almenningur getur þjónað mikilvægu hlutverki í baráttunni gegn mansali með því að vera vel upplýstur um einkenni mansals, dæmisögur og úrræði. Við erum að sýna almenningi birtingarmyndir mansals, hvernig maður þekkir einkenni mansals og hvað við getum gert. Fólk getur kynnt sér þetta nánar á vefnum okkar 112.is/mansal.“

Karl Steinar Valsson, yfirmaður alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra:

„Mansal er hluti af skipulagðri brotastarfsemi sem er einhver mesta ógn sem samfélög eru að glíma við í dag, að undanskildum náttúruhamförum.  Til að bregðast við sífellt flóknari brotum þar sem aðferðir brotamanna verða sífellt þróaðri og alþjóðlegri verðum við að styrkja lögregluna faglega séð, auka tæknilega getu og breyta lagaumgjörð málaflokksins. Þessar aðgerðir eru mikilvæg skref í rétta átt.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum