Hoppa yfir valmynd
19. október 2018 Matvælaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkið tekur yfir lífeyrisskuldbindingar Bændasamtaka Íslands – enginn kostnaðarauki því samhliða

Haukur Hafsteinsson, Bjarni Benediktsson, Krisján Þór Júlíusson og Sigurður Eyþórsson - mynd

Þegar Bændasamtök Íslands voru stofnuð árið 1995 með sameiningu Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda ábyrgðist ríkissjóður skuldbindingar Bændasamtaka Íslands í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna  ríkisins (LSR).

Frá næstu áramótum mun ríkið taka yfir lífeyrisskuldbindingar Bændasamtakanna að upphæð 172 m.kr. samkvæmt samningi sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og framkvæmdastjóri LSR undirrituðu í dag. Samkvæmt samningnum mun framlag ríkisins vegna búvörusamninga lækka árlega um samsvarandi fjárhæð frá og með árinu 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum