Hoppa yfir valmynd
18. desember 2007 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 18. desember 2007

FUNDARGERÐ

Ár 2007, þriðjudaginn 18. desember, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

 

1.         Mál nr.  67/2007         Eiginnafn:        Dórey  (kvk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Dórey (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Dóreyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dórey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

2.         Mál nr.  68/2007         Eiginnafn:        Kristólína  (kvk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Kristólína (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Kristólínu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kristólína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  

 

---------------------------------------------------------

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum