Hoppa yfir valmynd
24. september 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 394/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 24. september 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 394/2018

í stjórnsýslumálum nr. KNU18050059 og 18050060

 

Kærur [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestur og kæruheimild

Með kærum, dags. 22. maí 2018, kærðu [...], fd. [...] og [...], fd. [...], ríkisborgarar Kína (hér eftir nefnd kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 8. maí 2018, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kærum kærenda má ráða að þau geri þá kröfu að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og þeim verði veittar vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

Í ljósi þess að málsatvik, málsástæður og kröfur kærenda í málum KNU18050059 og KNU18050060 eru sambærilegar, kærendur eru í hjúskap og kærur þeirra tengjast sömu ferð þeirra beggja til landsins verður kveðinn upp einn úrskurður í báðum málum.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins eru atvik þess með eftirfarandi hætti.

Með beiðnum, dags. 22. mars 2018, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands í 13 daga hjá sendiráði Íslands í Peking, Kína. Í umsóknum kemur fram að tilgangur ferða kærenda hingað til lands sé að ferðast um landið. Umsóknum kærenda var synjað þann 8. maí 2018 og voru ákvarðanir Útlendingastofnunar sendar með tölvupósti til sendiráðs Íslands í Peking, til birtingar fyrir kærendum. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvenær ákvörðunin var birt kæranda. Þann 22. maí 2018 bárust Útlendingastofnun kærur í málinu.

Þann 30. maí 2018 bárust kærunefnd útlendingamála kærur og gögn málsins þann 4. júní sl. frá Útlendingastofnun.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Útlendingastofnun synjaði kærendum um vegabréfsáritanir þar sem tilgangur dvalar þeirra þótti ótrúverðugur. Kærendur hafi átt bókaða hótelgistingu hérlendis en hún hafi síðar verið afbókuð. Í kjölfarið hafi samband verið haft við kærendur vegna þessa og þeir lagt fram nýjar bókanir. Þær bókanir hafi þó verið gerðar með ógildu kreditkorti. Þar sem kærendur þóttu ekki uppfylla skilyrði 20. gr. laga um útlendinga og 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010 um skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar þótti ástæða til að synja umsóknum þeirra.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í athugasemdum kærenda sem fylgdu með kærum þeirra er tekið fram að þau hafi fengið bréf frá sendiráði Íslands í Peking þess efnis að umsóknum þeirra um vegabréfsáritanir hafi verið synjað. Kærendur óski eftir að mál þeirra verði endurskoðuð og að tilteknar viðbótarbreytingar sem þau hafi gert geti vonandi leitt til þess að þeim verði veittar vegabréfsáritanir. Eins og vegabréf kærenda sýni hafi þau ferðast reglulega til Bandaríkjanna, Kanada og Suðaustur-Asíu. Því séu kærendur ekki að sækja um vegabréfsáritun í fyrsta skipti. Enginn vafi leiki á um ferðatilgang kærenda.

Í þetta eina skipti hafi kærendur ákveðið að leita eftir þjónustu ferðaskrifstofu við gerð umsókna um vegabréfsáritanir og skipulagningu ferðar þeirra. Skrifstofan hafi þó veitt ófagmannlega þjónustu, gert mistök við umsóknir þeirra, stuðst við rangar upplýsingar og ekki veitt kærendum tækifæri á að yfirfara umsóknirnar. Vegna þessa hafi hótelbókanir þeirra farið úr skorðum. Eftir að kærendur hafi móttekið áðurnefnt bréf hafi þau áttað sig á því að fyrirhuguð ferð þeirra til Íslands í júní 2018 væri farin forgörðum.

Í ljósi framangreinds hafi kærendur á eigin spýtur undirbúið nýjar umsóknir ásamt því að endurskipuleggja ferð þeirra til Íslands. Tímabilið sem um ræði sé frá 26. september 2018 til 7. október sama árs. Vísa kærendur til nýrrar ferðaáætlunar, flug- og hótelbókana.

V. Niðurstaða

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er skv. fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a – h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. útlendingalaga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins þann 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen–samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið útlendingalaganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Ennfremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru er ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út.

Íslenska sendiráðið í Peking tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar. Fulltrúi íslenska sendiráðsins í Peking taldi tilgang ferðar kærenda ótrúverðugan og því voru umsóknir kærenda sendar til Útlendingastofnunar til ákvörðunar.

Meginástæða synjunar á umsóknum kærenda um vegabréfsáritun var sú að Útlendingastofnun taldi kærendur ekki uppfylla skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Bókanir á hótelgistingu hérlendis fyrir kærendur hafi verið afbókaðar og þá hafi nýjar bókanir verið gerðar með ógildu kreditkorti.

Að mati kærunefndar má taka undir með Útlendingastofnun að bókanir á hótelgistingu hérlendis fyrir kærendur sem gerðar voru með ógildu kreditkorti geti gefið til kynna að ástæða sé til að draga í efa réttmæti upplýsinga um tilgang eða skilyrði dvalar kærenda, sem átti að eiga sér stað í júní sl. í 13 daga. Þá hafa kærendur jafnframt greint frá því að ferðaskrifstofa hafi gert margvísleg mistök við skipulagningu ferðar þeirra til Íslands. Með vísan til 20. gr. laga um útlendinga og 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er af þeim sökum ekki unnt að verða við umsóknum kærenda um vegabréfsáritanir.

Við meðferð málsins fyrir kærunefnd hafa kærendur tekið fram að vegna mistaka ferðaskrifstofu við skipulagningu ferðar þeirra til Íslands og synjunar Útlendingastofnunar á vegabréfsáritunum þeirra hafi þau horfið frá upphaflegri áætlun sinni um að ferðast til Íslands í júní sl., líkt og upphaflega hafi staðið til. Þess í stað hyggist kærendur ferðast til Íslands í september/október 2018 og hafi í þeim efnum lagt fram nýja ferðaáætlun ásamt bókunum á flug- og hótelgistingu. Óska kærendur eftir vegabréfsáritunum fyrir þessa ferð.

Þar sem hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar sneru einungis að synjunum á vegabréfsáritunum fyrir kærendur varðandi þá ferð sem skipulögð var í júní sl. samkvæmt þeim gögnum sem kærendur lögðu fram getur nefndin í þessum úrskurði ekki tekið til skoðunar hvort veita eigi vegabréfsáritanir vegna fyrirhugaðrar ferðar kærenda til Íslands í september/október 2018, sbr. 7. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kærendum þó leiðbeint um að þeim er heimilt að leggja fram nýjar umsóknir um vegabréfsáritanir til íslenska sendiráðsins í Peking.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

F.h. kærunefndar útlendingamála

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum