Hoppa yfir valmynd
6. júlí 2018 Innviðaráðuneytið

Ný breyting á byggingarreglugerð hefur tekið gildi

Reglugerðin felur m.a. í sér breytingu er varðar orkuskipti í samgöngum. Með henni er lögð sú skylda á hönnuði við hönnun mannvirkja þegar um er að ræða íbúðarhúsnæði að gera ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hvert bílastæði. Við annað húsnæði skal í hönnunargögnum sýna hvar slík tenging er möguleg. Þannig er lögð áhersla á mikilvægi orkuskipta í samgöngum þó gerðar séu minni kröfur þegar um er að ræða aðrar byggingar en íbúðarhúsnæði. Þá er gert ráð fyrir því að Mannvirkjastofnun gefi út leiðbeiningar um framkvæmdina.

Reglugerð nr. 669/2018 um (7.) breytingu á byggingarreglugerð, nr. 112/2012

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum