Hoppa yfir valmynd
25. september 2018 Innviðaráðuneytið

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn 10. október

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 10. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn verður í sal B sem er staðsettur á jarðhæð hótelsins og hefst kl. 16:00.

 

Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.

 

Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:

 

  1. Ávarp ráðherra
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

  2. Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2017
    Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga

  3. Ný hugsun í stefnumótun
    Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

  4. Ný reglugerð um Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
    Hrafnkell Hjörleifsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga

 

Fundarstjóri verður Guðný Sverrisdóttir, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum