Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2020 Utanríkisráðuneytið

Nýr fræðsluvefur UN Women um loftslagsbreytingar

Landsnefnd UN Women á Íslandi hefur opnað nýjan fræðsluvef og gagnvirka spurningakönnun þar sem hver og einn getur kannað þekkingu sína á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á konur og stúlkur. UN Women fékk styrk úr Loftslagssjóði til verkefnisins.

„Fljótt á litið virðist jafnrétti kynjanna hafa lítið sem ekkert að gera með loftslagsbreytingar af manna völdum, en staðreyndin er sú að þær bitna á okkur á ólíkan hátt eftir því hvar við búum, stöðu okkar og kyni,“ segir í kynningu á fræðsluvefnum.

Þar segir að útrýming fátæktar og menntun kvenna sé grunnforsenda þess að hægt sé að snúa við þeirri skelfilegu þróun sem áhrif loftslagsbreytinga hafa í för með sér. Sé ekki tekið mið af þessum veigamiklu þáttum, dugi aðrar framfarir á sviði loftslagsmála ekki til. „Byrja þarf á byrjuninni og veita öllum kynjum öll þau réttindi sem aðeins helmingur mannkyns hefur haft frá örófi alda.“

Síðan segir:

„Ljóst er að loftslagsbreytingar hafa meiri áhrif á líf þeirra sem búa í fátækari ríkjum heims en þeirra sem búa til dæmis á Íslandi. Það sem meira er, þær hafa ríkari áhrif á líf kvenna en karla, sérstaklega þeirra sem búa á dreifbýlum svæðum fátækari ríkja.

Eftir því sem skóglendi, ræktarlöndum og öðrum náttúruauðlindum sem veita fólki lífsviðurværi fækkar eykst samkeppnin um auðlindirnar. Skorturinn ýtir undir átök, en í dag búa tveir milljarðar jarðarbúa við ófrið í stríðshrjáðum löndum. Aldrei hafa jafn margar manneskjur verið á flótta en 80 milljónir hafa flúið heimili sín, þar af 80% þeirra vegna náttúruhamfara, fæðuskorts og hungurs.

Vegna bágrar stöðu og skertra réttinda kvenna eru konur 70% þeirra sem búa við sárafátækt í heiminum. Úttektir og rannsóknir UN Women tala sínu máli."

  • 1 af hverjum 5 konum á flótta hafa þurft að þola kynferðisofbeldi
  • Konur eru allt að 14 sinnum líklegri til að deyja af völdum náttúruhamfara en karlar
  • Stúlkur á hamfarasvæðum eru rúmlega helmingi líklegri til að detta úr námi og enn eru 32 milljónir stúlkna ekki í skóla
  • Konum er yfirleitt haldið utan við ákvarðanatökur í neyð.

Þau sem vilja læra meira um áhrif loftslagsbreytinga á konur og stúlkur eru hvött til að taka prófið á nýja vefnum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum