Hoppa yfir valmynd
27. maí 2009 Innviðaráðuneytið

Loftferðasamningur Tyrklands og Íslands áritaður

Loftferðasamningur milli Tyrklands og Íslands var áritaður í gær í utanríkisráðuneytinu. Þetta er fyrsti loftferðasamningur landanna en Tyrkland er meðal þeirra ríkja sem Ísland hefur átt í viðræðum við að undanförnu.

Loftferðasamningur Tyrklands og Íslands áritaður.
Loftferðasamningur Tyrklands og Íslands var áritaður í gær.

Samningurinn heimilar áætlunarflug milli landanna. Fyrir hönd Tyrklands áritaði samninginn Haydar Yalcin, aðstoðarframkvæmdastjóri Flugmálastjórnar Tyrklands. Einar Gunnarsson, skrifstofustjóri skrifstofu viðskiptasamninga í utanríkisráðuneytinu og formaður íslensku samninganefndarinnar, áritaði samninginn fyrir hönd Íslands.

Í samninganefndinni voru auk hans og Maríu Erlu Marelsdóttur, sendiráðnauts frá utanríkisráðuneytinu, þau Karl Alvarsson skrifstofustjóri og Ástríður Scheving Thorsteinsson lögfræðingur frá samgönguráðuneytinu, Jóhanna Helga Halldórsdóttir, lögfræðingur frá Flugmálastjórn, Ársæll Harðarson frá Icelandair, Hrafn Þorgeirsson frá Primera Air og Sigfús Ólafsson, fulltrúi Loftleiða Icelandic.

Samningurinn við Tyrkland styrkir möguleika íslenskra flugrekenda sem hafa sinnt og vilja sinna verkefnum í þessum heimshluta.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum