Hoppa yfir valmynd
5. apríl 2018 Utanríkisráðuneytið

Rammasamningur við Rauða krossinn á Íslandi

Sveinn Kristinsson og Sturla Sigurjónsson við undirritun samningsins í dag. Ljósmynd: UTN - mynd

Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Sveinn Kristinsson, formaður Rauða krossins á Íslandi, skrifuðu í morgun undir rammasamning um stuðning ráðuneytisins við alþjóðlega mannúðaraðstoð Rauða krossins á Íslandi. Samningurinn gildir til loka árs 2020 og felur í sér fyrirsjáanleg framlög til mannúðarverkefna Rauða krossins yfir tímabilið. Hann er gerður í framhaldi af samstarfsyfirlýsingu beggja aðila frá því í febrúar 2017. 

Markmið rammasamningsins er að auka skilvirkni og árangur mannúðaraðstoðar íslenskra stjórnvalda og Rauða krossins á Íslandi í samstarfi við Alþjóðaráð Rauða krossins og Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans, auk annarra leiðandi alþjóðlegra stofnana í mannúðarmálum.

Jafnframt er leitast við að gera fjármögnun mannúðarstoðar RKÍ fyrirsjáanlegri og auðvelda skipulagningu hennar til lengri tíma með það að markmiði að auka áhrifamátt aðstoðar við berskjaldað fólk.

Mannúðaraðstoð grundvallast á þörfum hverju sinni og felur í sér björgun mannslífa, vernd óbreyttra borgara, útvegun nauðþurfta, annarri aðstoð til nauðstaddra og að auðvelda þeim afturhvarf til eðlilegra lífshátta í kjölfar náttúruhamfara og hamfara af mannavöldum. 

Upphæð samningsins er tiltekið hlutfall af heildarupphæð framlaga ráðuneytisins til mannúðarverkefna íslenskra borgarasamtaka á samningstímabilinu og nemur rúmlega 93 milljónum króna árið 2018.

Frekari upplýsingar um samstarf ráðuneytisins við íslensk borgarasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð, m.a. verklagsreglur og upplýsingar varðandi styrkveitingar og stefnumið í málaflokknum, má finna hér

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum