Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2020 Innviðaráðuneytið

Reglugerð um hlutdeildarlán tekur gildi

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritar reglugerðina.  - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um hlutdeildarlán, sem ætlað er að hjálpa fyrstu kaupendum og þeim sem ekki hafa átt fasteign sl. fimm ár og eru undir ákveðnum tekjumörkum að brúa bilið við fasteignakaup. Lög um hlutdeildarlán tóku gildi 1. nóvember og fjallar reglugerðin um útfærslu þeirra.

Í reglugerðinni er meðal annars kveðið á um meðferð umsókna og úthlutun hlutdeildarlána. Þá er ákvæði um skilyrði hlutdeildarlána, til dæmis hvaða íbúðir verða keyptar með hlutdeildarlánum, hagkvæmni, gæði og ástand íbúða, hámarksverð og stærðir íbúða, sem og undanþágur frá almennum skilyrðum hlutdeildarlána. Jafnframt er kveðið á um endurgreiðslu hlutdeildarlána og samstarf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar við byggingaraðila. Einnig eru tilgreindar tímabundnar heimildir lántaka til útleigu íbúðar og gjaldfellingarheimild Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á hlutdeildarláni. Að lokum er kveðið á um tímabundnar undanþágur frá hámarksverðum íbúða sem gilda munu út árið 2021. Þannig verður fyrir hendi undanþága vegna tilvika á höfuðborgarsvæðinu þar sem aðstæður á byggingarstað eða skilmálar á byggingarreit valda því að byggingarkostnaður er hærri en almennt gerist. Einnig er gert ráð fyrir undanþágu frá hámarksverðum vegna íbúða sem þegar hafa verið byggðar, eru í byggingu eða sem fyrir liggja samþykkt byggingaráform um sem eru þess eðlis eða svo langt á veg komnar að óhagkvæmt er að breyta þeim til samræmis við stærðarviðmið reglugerðarinnar. Er þannig gert ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika fyrsta árið á meðan byggingaraðilar eru að laga sig að nýjum viðmiðum um hagkvæmni.

Opnað var fyrir umsóknir um hlutdeildarlán í byrjun vikunnar og sér Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um afgreiðslu umsókna. Nánari upplýsingar má finna á upplýsingavef um hlutdeildarlán.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Það er mikið fagnaðarefni að lög um hlutdeildarlán hafi tekið gildi og með þeim stígum við stórt skref í þá átt að lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á fasteignamarkaðinn. Reglugerðin rammar inn útfærsluatriði varðandi lánin og ég er sannfærður um að við sjáum strax á næsta ári nýjar íbúðir um allt land sem falla undir skilyrði hlutdeildarlána. Í millitíðinni tryggir reglugerðin sveigjanleika til að lána til íbúða sem falla rétt utan við mörkin á meðan byggingaraðilar laga sig að nýjum viðmiðum um hagkvæmni enda tekur jafnan um tvö ár að byggja nýjar íbúðir.“

Hægt er að nálgast reglugerðina hér

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum