Hoppa yfir valmynd
24. október 2017 Forsætisráðuneytið

Jafnvægisvog: Nýtt mælitæki á sviði jafnréttismála

Frá vinstri: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, Þorsteinn Víglundson ráðherra, Rakel Sveinsdóttir formaður FKA og Guðrún Ragnarsdóttir verkefnastjóri Jafnvægisvogarinnar - myndVelferðarráðuneytið

FKA mun leiða verkefnið og þróa vogina í samstarfi við stjórnvöld og hagsmunaaðila í íslensku atvinnulífi. Meginmarkmið verkefnisins er meðal annars að:

• Samræma og safna saman tölulegar upplýsingar um hlut kvenna og karla í stjórnum og framkvæmdastjórnum fyrirtækja.

• Standa fyrir viðburðum og fræðslu um mikilvægi fjölbreytileika í stjórnum og stjórnendateymum.

• Veita fyrirtækjum viðurkenningu árlega, sem náð hafa markmiðum Jafnvægisvogarinnar.

Samstarfssamningurinn er til eins árs og felur í sér fimm milljóna króna fjárstuðning til verkefnisins með möguleika á framlengingu. Undirbúningur að gerð samningsins hófst snemma síðastliðið sumar en til grundvallar liggur 5 ára aðgerðaáætlun stjórnar FKA, sem ætlunin er að móta enn betur með aðkomu fleirri aðila. Aðild að FKA eiga nú ríflega eittþúsund leiðtogakonur í öllum geirum atvinnulífsins.

Þorsteinn Víglundsson sagðist við undirritun samningsins binda vonir við að með Jafnvægisvoginni verði hægt að draga betur fram en áður hvernig staða kynjanna er í helstu stjórnunarstöðum atvinnulífsins og verða hvati til að gera betur, því enn sé pottur brotinn í þessum efnum.

Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA, segir að fyrir atvinnulíf og hið opinbera skipti miklu máli að nýta mannauð karla og kvenna til fulls og að þessu muni Jafnvægisvogin stuðla á margvíslegan hátt: „Við stöndum framarlega á heimsvísu hvað atvinnuþáttöku kvenna varðar, en höfum ekki séð aukningu í hlutdeild kvenna í efra lagi fyrirtækja síðastliðin ár. Þess vegna teljum við mikilvægt að skoða einnig til hlítar, hverju kynjakvótalögin hafa skilað og hvaða lærdóm atvinnulífið hefur dregið af þeim. Með samsstarfssamningnum er verkefninu nú formlega ýtt úr vör, en næstu skref felast í að stofna framkvæmdaráð Jafnvægisvogarinnar, þar sem FKA mun kalla að borði ýmsa aðra hagsmunaaðila úr atvinnulífinu.”

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum