Hoppa yfir valmynd
12. janúar 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 465/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 465/2016

Fimmtudaginn 12. janúar 2017

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 30. nóvember 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2015, um niðurfellingu bótaréttar.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. október 2015. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2015, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til starfsloka hans í síðasta starfi væri réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 30. nóvember 2016.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi stöðvað greiðslur vegna yfirlýsingar fyrrverandi vinnuveitanda hans sem væri ekki í samræmi við hans eigin yfirlýsingu. Kærandi tekur fram að hann hafi reynt að fá aðstoð frá stéttarfélagi sínu en án árangurs. Hann hafi sjálfur komist að því að hann gæti kært ákvörðun Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar.

III. Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 11. nóvember 2015 um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

Hin kærða ákvörðun var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 14. nóvember 2015, en ákvörðunin var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála með bréfi, mótteknu 30. nóvember 2016. Samkvæmt framangreindu barst kæran úrskurðarnefndinni að liðnum lögboðnum kærufresti.

Þegar kæra berst að liðnum kærufresti skal vísa henni frá samkvæmt 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. lagaákvæðisins eða veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 2. tölul. þess. Ákvæði 28. gr. stjórnsýslulaga mælir þannig fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn. Í 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga segir að kæru skuli þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst rúmlega ári frá því að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum