Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 485/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 485/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100006

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Þann 18. september 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar frá 14. júní 2018 um að synja [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir nefnd kærandi), um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar, sbr. 70. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Þann 3. október 2018 barst kærunefnd beiðni frá kæranda um endurupptöku málsins, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ásamt greinargerð og fylgigögnum.

II. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til þess að kærunefnd útlendingamála hafi staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar. Í úrskurði kærunefndar hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að vígsluathöfn kæranda og eiginmanns hennar hafi ekki verið í samræmi við meginreglur íslenskra laga og allsherjarreglu þar sem annað hjónaefna hafi ekki verið viðstatt athöfnina. Kærandi byggir á því að atvik hafi breyst frá því úrskurður kærunefndar var kveðinn upp, en hún og eiginmaður hennar hafi gengið í hjónaband hér á landi þann 26. september sl. samkvæmt íslenskum lögum. Byggir kærandi á því að atvik málsins hafi breyst verulega og að skilyrði 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga fyrir endurupptöku málsins séu uppfyllt. Í greinargerð kæranda er vísað til meðfylgjandi gagna um að hún hafi þegar fengið atvinnu hér á landi og að sjúkratrygging hennar sé örugg. Loks vísar kærandi til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og ákvæða stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála varðandi beiðni um endurupptöku

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. tölul. ákvæðisins, eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 2. tölul.

Með úrskurði í máli kæranda, dags. 18. september 2018, komst kærunefnd útlendingamála að þeirri niðurstöðu að 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga kæmi í veg fyrir að kæranda yrði veitt dvalarleyfi hér á landi. Vísaði nefndin í því sambandi til þess að kærandi og eiginmaður hennar hefðu ekki bæði verið viðstödd vígsluathöfn sem hjúskapur þeirra væri byggður á. Var það mat nefndarinnar að stofnun hjúskapar þar sem annað hjónaefna væri ekki viðstatt væri ekki í samræmi við meginreglur íslenskra laga og allsherjarreglu og gæti því ekki veitt kæranda rétt til dvalarleyfis á grundvelli 70. gr. laga um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærandi nú lagt fram hjónavígsluvottorð útgefið af Þjóðskrá Íslands um að hún og eiginmaður hennar hafi gengið í hjónaband hér á landi þann 26. september 2018. Hafa atvik málsins breyst verulega að þessu leyti frá því að kærunefnd kvað upp úrskurð í málinu þann 18. september 2018, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Að mati kærunefndar eru upplýsingarnar þess eðlis, í ljósi lagagrundvallar málsins, að tilefni sé til að mál kæranda sé tekið upp á ný hjá kærunefnd.

Kærunefnd fellst því á að mál kæranda verði endurupptekið hjá nefndinni á grundvelli 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála varðandi umsókn um dvalarleyfi

Í VIII. kafla laga um útlendinga er fjallað um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar. Í 1. mgr. 69. gr. laganna er m.a. kveðið á um að nánasti aðstandandi íslensks ríkisborgara geti með umsókn fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar að fullnægðum skilyrðum 55. gr. og VIII. kafla. Telst maki vera meðal nánustu aðstandenda.

Samkvæmt 1. mgr. 70. gr. laganna er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi hér á landi hyggist hann flytjast hingað til lands til að búa með maka sínum eða sambúðarmaka. Skilyrði þess er að makinn hafi rétt til fjölskyldusameiningar samkvæmt VIII. kafla laga um útlendinga og að hann sé annaðhvort í hjúskap eða sambúð, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 70. gr. laganna. Þá segir í sama ákvæði að sambúð skuli hafa varað lengur en eitt ár og hvor aðili um sig verði að hafa verið eldri en 18 ára þegar stofnað var til hjúskaparins eða sambúðarinnar og að hjúskapur eða sambúð þurfi að uppfylla skilyrði til skráningar samkvæmt lögheimilislögum. Heimilt sé að krefja aðila um að leggja fram gögn til sönnunar á hjúskap eða sambúð erlendis.

Í málinu liggur fyrir hjúskaparvottorð útgefið af Þjóðskrá Íslands, en samkvæmt vottorðinu gengu kærandi og eiginmaður hennar, sem er íslenskur ríkisborgari, í hjónaband hér á landi þann [...]. Eru því uppfyllt skilyrði 1. mgr. 70. gr. laga um útlendinga að því er varðar stofnun hjúskapar kæranda og eiginmanns hennar. Niðurstaða Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi var einungis reist á því að stofnun hjúskapar kæranda hefði brotið í bága við allsherjarreglu og meginreglur íslenskra laga, sbr. 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðuninni var þannig ekki tekin afstaða til þess hvort kærandi og eiginmaður hennar uppfylli ákvæði laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli hjúskapar, sbr. 69. og 70. gr. laga um útlendinga. Þá var ekki tekin afstaða til þess hvort kærandi uppfyllti grunnskilyrði dvalarleyfis, sbr. 55. gr. sömu laga. Að mati kærunefndar er rétt að fram fari hjá Útlendingastofnun mat á því hvort kærandi uppfyllir framangreind skilyrði. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka málið til nýrrar meðferðar.

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 

The appellant´s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant’s case.

 

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                             Anna Valbjörg Ólafsdóttir 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum