Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 18/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 14. janúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 18/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20110031

 

Kæra […]

og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 10. nóvember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefnd kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 23. október 2020, um að synja kæranda og börnum hennar, […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir A), og […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kæranda og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 8. mars 2020. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 23. júní 2020, ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 23. október 2020, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hennar um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 10. nóvember 2020. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 25. nóvember 2020 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari upplýsingar og gögn dagana 9. og 18. desember 2020 og viðbótarathugasemd þann 10. desember 2020. Þá bárust frekari upplýsingar og gögn kærunefnd þann 11. janúar 2021.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi og trúarbragða sinna.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og henni skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kæranda, kom fram að þau væri svo ung að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við þau. Fram kom að umsóknir barna kæranda væru grundvallaðar á framburði móður þeirra og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun móður hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli móður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að börnum kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til heimaríkis. Börnum kæranda var vísað frá landinu.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til greinargerðar hennar til Útlendingastofnunar þar sem vísað er til framburðar hennar í viðtölum hjá stofnuninni. Þar hafi kærandi greint frá því að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi í heimaríki þegar hún hafi verið 13 ára gömul. Hafi kærandi og móðir hennar leitað til lögreglu sem hafi handsamað gerandann en látið hann lausan nokkrum mánuðum síðar. Hafi kærandi m.a. af þeim sökum hætt í skóla. Árið 2007 hafi móðir kæranda komist í kynni við konu sem hafi boðið kæranda að fara til Evrópu í þeim tilgangi að stunda atvinnu og sjá fyrir fjölskyldunni í heimaríki. Hafi umrædd kona farið með kæranda í hús í Benínborg nokkrum mánuðum síðar þar sem fleiri stúlkur hafi búið og kærandi og hinar stúlkurnar síðan farið þaðan til Líbíu. Þar hafi kærandi dvalið ásamt hinum stúlkunum hjá manni sem hafi tjáð kæranda að hún myndi ekki stunda löglega vinnu heldur vændi. Hafi kæranda strax verið gert að selja líkama sinn til þess að eiga fyrir mat og eftir mánaðarlanga dvöl í Líbíu hafi hún farið ásamt fleiri stúlkum sjóleiðina til Ítalíu. Við komuna til Ítalíu hafi kærandi fyrst dvalið í flóttamannabúðum á Sikiley en fljótlega hafi hún verið flutt til Genóa þar sem umrædd kona hafi búið. Kæranda hafi verið gert að stunda vændi við komuna þangað og hafi kærandi þurft að greiða upp skuld við konuna áður en hún hafi getað sent pening til fjölskyldu sinnar í heimaríki. Einn dag hafi konan sakað kæranda um að halda eftir fjármunum og hafi konan fengið kærasta sinn til þess að beita kæranda líkamlegu ofbeldi. Seinna um kvöldið hafi kæranda verið gert að fara út á götu og stunda vændi. Kærandi hafi tjáð vændiskaupanda hvað hafi komið fyrir, hann fundið til með henni, leyft henni að dvelja hjá sér í þrjá daga auk þess sem hann hafi keypt handa henni farmiða til Napólí þar sem kærandi eigi ættingja. Í kjölfar þess hafi konan byrjað að hóta móður kæranda lífláti ef kærandi greiddi ekki skuld sína við hana. Á meðan kærandi hafi dvalið í Napólí hafi hún verið handtekin fyrir að stunda vændi en lögreglan fallið frá ákæru þar sem hún hafi verið barn að aldri. Hafi kærandi þá fengið útgefið dvalarleyfi á Ítalíu. Kærandi hafi greint frá því í viðtalinu að konan hafi margsinnis haft í hótunum við sig og móður sína vegna skuldarinnar, sem enn sé ógreidd, og konan hafi sent menn á heimili móður kæranda í heimaríki í því skyni að innheimta skuldina. Þá hafi kærandi greint frá því að eiginmaður hennar sé í fangelsi á Ítalíu og að framtíðaráform þeirra séu á huldu.

Í greinargerð kæranda er vísað til umfjöllunar í greinargerð hennar til Útlendingastofnunar um aðstæður í Nígeríu. Þar er m.a. gerð grein fyrir ástandi mannréttindamála í Nígeríu með vísan til skýrslna alþjóðlegra stofnana og mannréttindasamtaka. Fjallað er um áhrif hryðjuverkahópa og glæpagengja á landið og það ofbeldi sem sé viðvarandi þar í landi auk þess sem fjallað er um öryggisaðstæður á heimasvæði kæranda, Edo fylki. Þá er einnig fjallað um stöðu kvenna og barna í Nígeríu, m.a. m.t.t. mansals, heilbrigðisþjónustu og innviði í ríkinu og um stöðu kristinna einstaklinga þar í landi og þeirra ofsókna sem kristnir verði fyrir af hendi Fulani þjóðarbrotsins.

Kærandi heldur því fram að slíkir annmarkar séu á ákvörðunum Útlendingastofnunar að rétt sé að ógilda þær. Kærandi vísar til þess að staðhæfingar Útlendingastofnunar, annars vegar að kærandi hafi ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum sem gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mæli fyrir um og hins vegar að gögn málsins hafi ekki borið með sér að ofsóknirnar hafi átt sér stað, eigi ekki við rök að styðjast. Kærandi vísar til þess að í trúverðugleikamati stofnunarinnar hafi ekki verið dregið í efa að hún sé þolandi mansals og því sé það ljóst að ofsóknir í skilningi ákvæðisins hafi átt sér stað. Þá telur kærandi að óraunhæft sé að ætla að hún leggi fram gögn um þann aðila sem hafi selt hana í mansal enda séu minni sönnunarkröfur gerðar til umsækjenda um alþjóðlega vernd og þeir almennt látnir njóta vafans ef frásögn þeirra virðist að öðru leyti trúverðug. Kærandi gerir athugsemd við að Útlendingastofnun hafi byggt niðurstöðu sína á því að kærandi sé í hjónabandi með barnsföður sínum og geti notið stuðnings hans í heimaríki eða á Ítalíu. Ljóst sé að ekki sé hægt að leggja til grundvallar að kærandi geti sameinast eiginmanni sínum á Ítalíu líkt og gert hafi verið enda sé hann í fangelsi og hafi ekki leyfi til dvalar þar í landi. Kærandi hafi ekki verið í sambandi við eiginmann sinn frá því hún kom hingað til lands og telur að ekki sé unnt að ganga að því sem gefnu að barnsfaðir hennar muni fylgja kæranda og börnum hennar til heimaríkis og veita þeim þann stuðning sem velferð, öryggi og þroski barnanna krefjist.

Kærandi gerir athugasemd við að aðstæður hennar á Ítalíu hafi komið til skoðunar við mat Útlendingastofnunar á því hvort hún og börn hennar hefðu ríka þörf á vernd í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga enda sé málið efnismeðferðarmál og því hafi stofnunni borið að kanna einungis aðstæður kæranda og barna hennar í heimaríki. Þá gerir kærandi athugasemd við þá staðhæfingu stofnunarinnar að ekki verði annað ráðið en að kærandi og börn hennar séu heilbrigð og vísar til bréfs frá félagsráðgjafa og fjölskyldufræðingi hjá Vegvísi Ráðgjöf þar sem greint sé frá mikilli andlegri vanlíðan kæranda vegna langvarandi andlegs-, líkamlegs-, kynferðislegs- og félagslegs ofbeldis. Draga megi þá ályktun af frásögn kæranda að stuðningsnet fjölskyldunnar sé takmarkað. Móðir kæranda glími við mikla fátækt og þá bendi ýmislegt til þess að móðir kæranda hafi haft milligöngu um það að kærandi hafi farið til Ítalíu til að vinna. Systkini kæranda hafi ekki tækifæri til þess að aðstoða hana, kærandi sé þolandi mansals og sé í aukinni hættu á endurteknu mansali í heimaríki.

Í greinargerð kemur fram að kærandi og börn hennar uppfylli skilyrði dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi sé stödd einsömul hér á landi ásamt börnum sínum sem eru ung að árum auk þess sem þau hafi aldrei komið til heimaríkis. Þrátt fyrir að kærandi sé í sambandi með barnsföður sínum þá sitji hann í fangelsi á Ítalíu og afplánar dóm til apríl 2021 og eigi þau stuðning hans ekki vísan. Þá eigi kærandi ekkert bakland í heimaríki auk þess sem möguleiki hennar á atvinnu, og þar með geta hennar til að sjá börnum sínum farborða, sé afar takmarkaður. Kærandi vísar til úrskurða kærunefndar KNU20010045, frá 25. júní 2020, og KNU20090024, frá 13. nóvember 2020, til stuðnings kröfu sinnar um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, einkum hvað varðar félagslegar aðstæður kæranda og stuðnings barnsföður hennar.

Í greinargerð kveður kærandi að ekki sé að finna umfjöllun um aðstæður A og B við endurkomu til heimaríkis í hinum kærðu ákvörðunum, t.a.m. öryggi þeirra og velferð m.a. með hliðsjón af Covid-19 heimsfaraldrinum. Látið sé nægja að vísa til þess að A og B séu í fylgd móður sinnar og að mögulegt sé fyrir foreldra þeirra að sameinast í heimaríki eða á Ítalíu. Í hinum kærðu ákvörðunum sé ekki tekið mið af því að kærandi sé illa á sig komin andlega þrátt fyrir að í ákvörðun hennar komi berum orðum fram að ekki hafi verið lagt mat á það hvort kærandi sé fær um að sinna börnum sínum. Ekki verði dregin önnur ályktun en að Útlendingastofnun hafi viðurkennt að uppi sé vafi um hæfi kæranda til að sinna börnum sínum. Telur kærandi ótækt að stofnunin láti það duga að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem gefi til kynna að hún sé ófær um að sinna börnunum enda beri stofnuninni að kynna sér stöðu barnanna, óháð stöðu kæranda. Hafi viðhlítandi mat Útlendingastofnunar á hagsmunum A og B því ekki farið fram.

Kærandi vísar til þess að börn teljist ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Er þess krafist að tekið verði tillit til þeirrar verndar sem A og B eigi rétt á samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og öðrum reglum sem íslensk stjórnvöld séu skuldbundin samkvæmt þjóðarrétti að virða. Kærunefnd útlendingamála hafi í úrskurðum sínum áréttað mikilvægi þess að hjá Útlendingastofnun fari fram viðhlítandi mat á hagsmunum barna í samræmi við ákvæði laga um útlendinga og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Kærandi vísar til bréfs frá […], dags. 17. nóvember 2020, er varðar A. Þar sé greint frá því að A glími við ótta og öfgafull viðbrögð við hversdagslegum hlutum eins og að vera beðinn um að fara í hvíld eða á salernið ásamt því að hann eigi erfitt með að fara inn í lítil, lokuð rými. A sé með slakan málþroska miðað við aldur en hann tali hvorki íslensku né móðurmál sitt. Þá komi fram að A sýni töluverða áráttuhegðun sem geti gefið vísbendingu um undirliggjandi vanda.

Í tölvupósti kæranda til kærunefndar, dags. 10 desember 2020, kemur fram viðbótarathugasemd vegna ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda. Í ákvörðuninni komi fram að það sé mat stofnunarinnar að ekki sé um ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda og börnum hennar að ræða í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga að fari kærandi ekki innan veitt frests verði henni ákveðin brottvísun og endurkomubann hingað til lands sem kynni að ná til allra aðildarríkja Schengen-svæðisins. Telur kærandi að slík ráðstöfun yrði ósanngjörn í skilningi ákvæðisins sökum þess að hún sé með ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað ítölsku auðkenniskorti og því hefði kærandi ekki sannað með fullnægjandi hætti hver hún væri. Leysti stofnunin því úr auðkenni kæranda og barna hennar á grundvelli trúverðugleikamats og var það mat stofnunarinnar að kærandi og börn hennar væru nígerískir ríkisborgarar. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að draga í efa það mat stofnunarinnar. Verður því lagt til grundvallar að kærandi og börn hennar séu ríkisborgarar Nígeríu. Þá fæddist B hér á landi þann […] og er auðkenni hans því ljóst.

Réttarstaða barna kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd með móður sinni og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Mat kærunefndar á hagsmunum barna kæranda fer fram í samræmi við verklagsreglur kærunefndar um mat á hagsmunum barns sem sækir um alþjóðlega vernd en verklagsreglurnar voru unnar með stuðningi frá umboðsmanni barna og UNICEF á Íslandi og eru birtar á vefsíðu nefndarinnar.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – Nigeria (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Country Background Note – Nigeria (U.K. Home Office, maí 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, 28. mars 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (U.K. Home Office, ágúst 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Medical and Healthcare issues (U.K. Home Office, janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Boko Haram (U.K. Home Office, janúar 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, 4. júlí 2019);
  • EASO COI Meeting Report – Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 1. ágúst 2017);
  • EASO Country Guidance – Nigeria – Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Actors of Protection (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Country Focus (European Asylum Support Office, júní 2017);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Security Situation (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Sex trafficking of women (European Asylum Support Office, október 2015);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Key socio-economic indicators (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • Freedom in the World 2020 – Nigeria (Freedom House, 4. mars 2020);
  • Information on trafficking including, situation for returnees of previous trafficking and risk of re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • Katsina, Kano, 10 others yet to pass child rights law says UNICEF (International Bureau for Childrens Rights, 13. maí 2019, https://www.ibcr.org/en/medias-en/katsina-kano-10-others-yet-to-pass-child-rights-law-says-unicef/);
  • National Strategic Plan to End Child Marriage in Nigeria 2016-2021 (Federal Ministry of Women Affairs and Social Development, 2016);
  • Nigeria 2018 Human Rights Report (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Nigeria 2019 Human Rights Report (U.S. Department of State, 11. mars 2020);
  • Nigeria 2019 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, 10. júní 2020);
  • Nigeria: Returforhold for kvinner som har arbeidet i prostitusjon i Europa (Landinfo, 20. mars 2017);
  • Nigeria: Rising toll of middle-belt violence (Human Rights Watch, 28. júní 2018);
  • Response to information request (RIRs) (Immigration and Refugee Board of Canada, 18. ágúst 2011);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999) (https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014en.pdf);
  • Strategic Conflict Assessment of Nigeria 2016 (Institute for Peace and Conflict Resolution, 2017);
  • The World Factbook (CIA, 6. nóvember 2020);• Trafficking in Persons Report – Nigeria (U.S. Department of State, 25. júní 2020);
  • Upplýsingar af vefsíðu United Nations Office on Drugs and Crime (https://www.unodc.org/nigeria/en/strengthening-the-policy-framework-and-response-to-human-trafficking-in-nigeria.html og https://www.unodc.org/nigeria/en/nigeria-heeds-global-call--sets-up-state-task-force-against-human-trafficking.html, skoðaðar 5. janúar 2021);
  • Vefsíða National Agency for the Prohibition of Trafficking in Persons (NAPTIP) (https://www.naptip.gov.ng/, skoðuð 6. nóvember 2020);
  • Vefsíða: Nigeria Immigration Service (https://immigration.gov.ng/residence-permits/);
  • World Report 2020 – Nigeria (Human Rights Watch, 14. janúar 2020) og
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, maí 2018).

Nígería er sambandslýðveldi með u.þ.b. 214 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2019 er talið að um það bil helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn sé kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar Norður og Norðaustur-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta, m.a. vegna takmarkana á réttindum þeirra til tjáningar og samkomu og einnig við að fá atvinnu hjá ríkinu.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EASO frá 2017 og 2018 séu nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá hafi mannréttindasamtök greint frá því að u.þ.b. 100.000 lögregluþjónar hafi veitt efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar en þó tíðkist í miklum mæli að leysa slík mál á óformlegan hátt. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Mútuþægni sé víðfeðmur vandi í ríkinu og samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2018 hafi stofnanir sem annist kvörtunarmál í ríkinu greint frá uppsögnum lægra settra lögreglumanna vegna kvartana almennings um fjárkúganir af hálfu lögreglu. Þó hafi fá mál verið rannsökuð eða farið fyrir dómstóla.

Fram kemur í ofangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2019 kemur fram að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu standi þeim sem óttist einstaklinga sem starfi ekki fyrir ríkið almennt til boða vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu og þrátt fyrir að störf umboðsmannsins verði að einhverju leyti fyrir áhrifum vegna afskipta stjórnvalda þá sé um að ræða virkt úrræði fyrir borgara Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigerian Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvægt skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld, í samstarfi við alþjóðleg samtök og önnur ríki, þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða almenning og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo hefur NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá komi fram í skýrslu EASO frá 2015 að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. Hafi NAPTIP unnið með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og andlegan stuðning. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP í einhverjum tilvikum fyrir aðkasti í samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu fíkniefna- og afbrotamálaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (e. United Nations Office on Drugs and Crime (UNODC)) hafi verkefni sem snúi að því að efla stefnumörkun og viðbrögð við mansali í Nígeríu (e. Strengthening the policy framework and responce to human trafficking in Nigeria) hafist í janúar 2020. Markmið verkefnisins sé að efla viðbrögð við mansali í Nígeríu með þróun og samþykkt landsáætlunar og sé það samstarfsverkefni NAPTIP og UNODC.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)) sem leitt sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Meginverkefni aðgerðarteymisins séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum, s.s. Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi í hefndaraðgerðum. Lögreglan í ríkinu hafi þó almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglara sinn.

Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars sl. kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunum þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.

Samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu öðlist einstaklingur ríkisborgararétt þar í landi við fæðingu ef a.m.k. annað foreldri hefur nígerískan ríkisborgararétt. Fram kemur í ofangreindum gögnum, s.s. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2020, að ofbeldi gagnvart börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaáætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016-2021) með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaáætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. the Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið samþykki löggjöfina heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis að samþykkja lagasetninguna til þess að hún taki gildi í hverju fylki. Árið 2019 hafi 24 fylki af 36 samþykkt lögin og séu flest þeirra í suðurhluta Nígeríu þ. á m. fylki kæranda Edo. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar og heilbrigðisþjónustu. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2020 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan- og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Þá kemur fram í tímaritsgrein frá árinu 2014 að talið sé að allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess. Þá komi fram í skýrslu EASO frá árinu 2018 að konur í norðurhluta landsins séu í enn frekari hættu á að fá ófullnægjandi aðgang að fæðingaraðstoð en í suðurhluta þess, einkum á strjálbýlum svæðum.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningastofnunarinnar (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningastofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir s.s. innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.

Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna frá mars 2020 búi yfir 250 mismunandi þjóðarbrot í Nígeríu. Þrjú stærstu þjóðarbrotin séu Hausa, Igbo og Yoruba, en saman myndi þau um helming íbúafjölda landsins. Meðlimir úr öllum þjóðarbrotum hafi orðið fyrir mismunun en mismununin hafi einkum birst í ráðningum innan einkageirans og hverfaskiptingu í þéttbýli. Fram kemur að spenna milli ákveðinna þjóðarbrota í Nígeríu eigi sér langa sögu. Stjórnvöld í Nígeríu hafi gert tilraunir til að sporna við slíkri mismunun og hafi slíkar tilraunir yfirleitt samanstaðið af öryggisaðgerðum, þar á meðal lögregluaðgerðum og aðgerðum á vegum hersins. Lög í Nígeríu banni mismunun á grundvelli þjóðarbrots. Engu að síður hafi aðilar flestra þjóðarbrota greint frá því að vera jaðarsettir þegar komi að fulltrúum í stjórnmálum landsins og/eða tekjuúthlutun stjórnvalda. Samkvæmt ofangreindum gögnum séu flestir af Igbo þjóðarbrotinu búsettir í suðaustur hluta landsins.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún séu í hættu í heimaríki sínu vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi sem þolandi mansals. Þá sjái kærandi fram á að búa við erfiðar félagslegar aðstæður í heimaríki með vísan til aðstæðna sinna sem þolanda mansals og einstæðrar móður án baklands.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurriti af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Kærandi kveður að hún hafi verið neydd frá heimaríki til Ítalíu í mansal og hún óttist að vera þvinguð aftur í mansal við endursendingu til heimaríkis. Þá óttist kærandi mansalsgerandann sem hafi ítök í heimaríki hennar og hafi hótað móður hennar þar í landi. Kveður kærandi að hún hafi ekkert bakland í heimaríki, móðir hennar hafi flutt úr heimaborg kæranda og þá búi einn bróðir hennar í heimaríki og sé atvinnulaus en annar bróðir hennar sé búsettur á Írlandi.

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi ásamt barni sínu A hingað til lands og sótti um alþjóðlega vernd þann 8. mars 2020. Þá eignaðist kærandi B þann […]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi í heimaríki þegar hún hafi verið þrettán ára. Árið 2007 hafi kona nálgast kæranda og móður hennar og tjáð þeim að hún gæti boðið kæranda til Evrópu til að starfa þar og senda þaðan fjármuni til fjölskyldu kæranda í heimaríki. Hafi kærandi farið ásamt fleiri stúlkum til Líbíu þar sem hún hafi verið þvinguð í vændi til að eiga í sig og á. Síðar hafi kæranda og fleirum verið gert að halda sjóleiðina til Ítalíu. Við komuna þangað hafi kærandi fyrst um sinn dvalið í flóttamannabúðum en síðar verið sótt af útsendurum konunnar og þeir farið með kæranda til Genóa þar sem konan hafi verið búsett. Þar hafi kæranda verið gert að stunda vændi til þess að greiða konunni skuld að andvirði 50.000 evrur. Kæranda hafi tekist að flýja frá konunni til Napólí þar sem kærandi eigi ættingja. Hafi kærandi í kjölfarið frétt af því að konan hafi sent einstaklinga til móður kæranda í heimaríki, þeir hótað henni og krafist þess að móðir kæranda greiddi skuld kæranda við konuna. Þá kvað kærandi að hún hafi haldið aftur til heimaríkis árið 2014 í því skyni að endurnýja vegabréf sitt en ekki getað farið til heimaborgar sinnar af ótta við útsendara konunnar. Við komuna aftur til Ítalíu hafi konan hringt í kæranda og hótað henni lífláti. Þá greindi kærandi frá því að hún óttaðist að leita til yfirvalda í heimaríki þar sem hún hafi ekki fjármuni til að greiða mútur. Greindi kærandi frá því að yfirvöld í heimaríki myndu ekki veita sér vernd gegn konunni og útsendurum hennar. Kærandi greindi einnig frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi kynnst barnsföður sínum á Norður-Ítalíu og að hann hafi lent í fangelsi árið 2017 og væri enn að afplána refsingu þar. Kærandi kvaðst ekki hafa heyrt í honum eftir að hún hafi farið frá Ítalíu.

Við mat á því hvort konur hafi almennt ástæðuríkan ótta við að vera þvingaðar í endurtekið mansal skal samkvæmt skýrslu EASO, Country Guidance: Nigeria, frá febrúar 2019, m.a. líta til þess hversu mikið smyglarinn viti um bakgrunn konunnar og fjölskyldu hennar, hvort að fjölskylda konunnar hafi tekið þátt í smyglinu og hvort að konan hafi borið vitni gegn smyglaranum. Af framburði kæranda hjá Útlendingastofnun má ráða að umrædd kona sem hafi gert kæranda að stunda vændi á Ítalíu hafi þekkt til móður kæranda. Ekki má ráða af framburði kæranda að móðir hennar hafi vitað að kæranda yrði gert að starfa við vændi á Ítalíu en hún hafi hvatt kæranda til að fara til Ítalíu til að vinna og fara í skóla. Kærandi kvað konuna hafa haft í hótunum við móður sína í heimaríki þegar kærandi hafi ekki greitt skuld sína en hún skuldi konunni enn mikla fjármuni. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn til stuðnings framangreindri frásögn sinni, einkum hvað varðar samskipti hennar við umrædda konu. Þá hefur hún ekki lagt fram gögn sem gefi til kynna að umrædd kona eða útsendarar á hennar vegum hafi haft í hótunum við kæranda eða móður hennar. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi dvalið á Ítalíu um 13 ár áður en hún kom hingað til lands og að hún hafi flúið frá konunni þegar hún hafi enn verið yngri en 18 ára sem hefur þá verið árið […]. Er því ljóst að kærandi hafi dvalið á Ítalíu í um 11 ár án þess að konan hafi elt hana þar uppi. Er það mat kærunefndar að þrátt fyrir að ekki sé hægt að útiloka að kærandi hafi á einhverjum tímapunkti verið þolandi mansals sé það ótrúverðugt að henni stafi enn þann dag í dag hætta af þeirri konu sem hafi komið henni til Ítalíu og selt hana í vændi þar. Þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu benda gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér ekki til þess að þeir verði almennt fyrir ofsóknum við heimkomu. Þá sé mansal refsivert í Nígeríu og hafa lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglara sinn. Með tilliti til framburðar kæranda má ráða að hún eigi fjölskyldu í heimaríki sem hún sé í reglulegum samskiptum við og geti notið stuðnings þeirra. Þá verði að líta til þess að nokkur ár séu liðin frá því að kærandi yfirgaf heimaríki sitt. Til staðar séu innviðir í heimaríki sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals. Það er því mat kærunefndar að kærandi eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, bæði hjá stofnunum NAPTIP og lögreglu, telji hún þörf á því. Með vísan til þess sem fram hefur komið telur kærunefnd að kærandi hafi ekki leitt líkur að því að hún eigi á hættu ofsóknir sem rekja megi til þess að hún hafi verið þolandi mansals.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Nígeríu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Jafnframt hefur ekki verið sýnt fram á að stjórnvöld í Nígeríu geti ekki eða vilji ekki veita henni vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hún telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

Við framangreint mat hefur kærunefnd, í samræmi við 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, litið sérstaklega til hagsmuna barna kæranda, öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska. Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í ljósi ungs aldurs A taldi Útlendingastofnun ekki tækt að taka viðtal það. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þess samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þess. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barnanna nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að börn kæranda fylgi móður sinni aftur til heimaríkis þeirra eða þangað sem þau hafi gilt dvalarleyfi. Kærunefnd horfir m.a. til þess að börnin séu í fylgd móður sinnar sem er heilsuhraust og vinnufær og njóta stuðnings hennar. Þá bendi gögn ekki til annars en að fjölskyldan geti búið saman í heimaríki þeirra eða á Ítalíu þar sem kærandi hafi dvalarleyfi. Líkt og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki þeirra. Þá beri gögn með sér að börn kæranda muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Það er þá mat kærunefndar að aðstæður barna kæranda, þ.e. að hafa ekki komið til Nígeríu, komi einar og sér ekki í veg fyrir að þau fylgi móður sinni til heimaríkis.

Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna, að það sé þeim fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún og börn hennar hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Telur kærunefndin því ljóst að kærandi og börn hennar uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara þegar metið er hvort að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda hverju sinni að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður kæranda og barna hennar þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi og börn hennar uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi og börn hennar uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur lýst því að hún sé þolandi mansals. Hún telji að hún muni búa við afar erfiðar félagslegar aðstæður verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Kærandi sé stödd ein með börnum sínum hér á landi og hafi ekkert bakland í heimaríki sem veitt geti henni stuðning.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Þá segir í athugasemdunum að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að borgurum Nígeríu standi almennt til boða skilvirk vernd yfirvalda. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að móðir hennar og einn bróðir séu búsett í heimaríki og einn bróðir í Dublin á Írlandi sem hafi aðstoðað hana fjárhagslega. Kærandi kvaðst ekki hafa dvalið í heimaríki sjálf síðan 2007. Hún hafi þó farið aftur til heimaríkis árið 2014 til að fá vegabréf sitt endurnýjað og þá sé hún, samkvæmt viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, reglulega í samskiptum við móður sína. Þó svo að samband kæranda við fjölskyldu sína kunni að einhverju leyti að vera stopult er það mat kærunefndar með vísan til alls framangreinds að hún og börn hennar hafi stuðningsnet í heimaríki. Þá hefur kærandi gengið í skóla bæði í heimaríki og á Ítalíu. Það er niðurstaða kærunefndar að gögn málsins, að teknu tilliti til trúverðugleikamats, bendi ekki til þess að félagslegar aðstæður sem bíða hennar í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Kærunefnd horfir til þess að börnin A og B eru í fylgd móður sinnar og njóta stuðnings hennar. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að kærandi sé vinnufær og geti tryggt framfærslu barna sinna í heimaríki. Þá muni börn kæranda hafa aðgang að heilbrigðis- og skólakerfinu í heimaríki.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún sé við góða andlega og líkamlega heilsu. Í gögnum um heilsufar frá neyðarmóttöku Landspítalans, dags. [...], kemur fram að kærandi hafi komið með sjúkrabíl frá Keflavík vegna kviðverkja sem tengja megi við legu barns hennar en hún hafi þá verið ólétt af B. Í heilsufarsgögnum frá fæðingardeild Landspítalans, dags. […], kemur fram að hún hafi komið á fæðingarvakt með sjúkrabíl illa haldin af verkjum og að henni hafi verið ávísað verkjalyfjum. Í göngudeildarnótu fæðingadeildar frá […] kemur fram að kærandi hafi komið á fæðingardeildina vegna samdrátta og legvatnsmissis og þann […] hafi hún fætt drenginn B. Í heilsufarsgögnum kemur fram að B hafi fæðst heilsuhraustur. Meðal gagna málsins er bréf frá Vegvísi ráðgjöf, dags. 16. október 2020, þar sem fram kemur að kæranda hafi verið vísað til félagsráðgjafa og fjölskyldufræðings af starfsmanni Stoðdeildar flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd vegna slæmrar andlegrar líðanar kæranda. Hafi hún mætt í eitt viðtal og greint frá mikilli andlegri vanlíðan þar sem hún hafi upplifað andlegt, líkamlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt ofbeldi í langan tíma. Þá komi jafnframt fram að kærandi eigi erfitt með að treysta fólki vegna reynslu sinnar og þá hafi félagsráðgjafinn talið nauðsynlegt að fá kæranda aftur til viðtals til að veita henni áfallameðferð og styðja hana til að bæta líðan sína. Í síðara bréfi frá Vegvísi ráðgjöf, dags. 6. janúar 2021, kemur fram að kærandi hafi greint frá því í seinna viðtali að andleg líðan hennar hafi hrakað milli viðtala og kvíði hennar og óöryggi aukist til muna frá því sem áður hafi verið. Þá kemur fram að félagsráðgjafinn muni halda áfram að hitta kæranda til að veita henni áfallameðferð og styðja hana við að bæta líðan sína og upplifa traust og öryggi í lífi sínu. Meðal gagna málsins er jafnframt bréf frá […], dags. 17. nóvember 2020, leikskóla A. Þar komi fram að A hafi við komuna í skólann virst óttasleginn og óöruggur með öðrum börnum og sérstaklega í lokuðum rýmum en að honum hafi farið fram í félagslegum samskiptum bæði við fullorðna og önnur börn. A sé yfirleitt glaður og kátur en skap hans geti þó breyst á augabragði og þá eigi hann erfitt með að tjá sig og með að fara inn í lítil, lokuð rými. Fram komi að A eigi erfitt með að tengjast öðrum börnum en þeim sem séu með honum á deild. Þá komi fram að málþroski A sé mjög slakur miðað við aldur og að gott væri ef A fengi aukatíma í málörvun í sérkennslurými skólans. Þá segir í bréfinu að námsleg staða A sé á stöðugri uppleið og að hægt og rólega verði hann öruggari og glaðari. Þá kemur fram í bréfinu að það sé mat deildarstjórans á leikskólanum að A þurfi að vera í öruggu umhverfi þar sem hann fái menntun við hæfi frá fólki sem komi fram við hann af umhyggju og hlýju. Þá kemur einnig fram það mat deildarstjórans að A sýni töluverða áráttuhegðun sem geti bent til undirliggjandi vanda og skaðlegt yrði að taka hann úr skólanum. Í tölvupósti frá talsmanni kæranda, dags. 12. desember 2020, kemur fram að kærandi hafi greinst með Covid-19 og að hún hafi verið vistuð í sóttvarnarhúsinu með A og B. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum um heilsufar kæranda og barna hennar í ljósi þessa, þann 5. janúar 2021, og bárust þær upplýsingar þann 11. janúar 2021. Í tölvupóstinum kemur fram að kærandi hafi verið með höfuðverk og hita en að sér líði nú betur líkamlega auk þess sem synir kæranda hafi ekki greinst með Covid-19 og að þeim heilsist vel. Kemur þá fram í póstinum að kærandi og börn hennar hafi dvalið í sóttvarnarhúsinu í tvær vikur.

Fram hefur komið að kærandi hafi farið í viðtöl hjá félagsráðgjafa Vegvísis vegna andlegrar heilsu hennar hér á landi. Þá kemur fram í bréfi deildarstjóra […] að A kunni að glíma við óöryggi og fái hræðslu- og skapofsaköst. Í ljósi þeirra gagna og þess sem fram hefur komið verður ekki talið að kærandi eða börn hennar þarfnist meðferðar sem sé talin svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að ef hún yrði rofin yrði það til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar stendur íbúum Nígeríu almennt heilbrigðisþjónusta til boða, þ. á m. mæðra- og ungbarnavernd, ef á þarf að halda þrátt fyrir að aðgengi kunni að vera takmarkað á ákveðnum svæðum. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu í þéttbýli sé talsvert betra en á strjálbýlli svæðum og þá sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu betra í suðurhluta landsins en norðurhluta þess. Í boði sé sálfræðiaðstoð í Nígeríu fyrir kærendur bæði á sjúkrahúsum og stofum þar sem talið verður að þau muni hafa aðgang að sálfræðingum. Þá kemur fram í skýrslu U.K. Home Office frá júlí 2019 að NAPTIP veiti aðgang að sálfræðiþjónustu fyrir þolendur mansals og sé stofnunin með samning við sjúkrahús í Nígeríu, m.a. til að koma til móts við þarfir þolenda mansals fyrir sálfræðilega aðstoð. Þá kemur fram í framangreindum athugasemdum með lagafrumvarpinu að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Verður ekki talið að andlegt heilsufar kæranda og barna hennar sé með þeim hætti að meðferð vegna þess sé aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún og börn hennar hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kæranda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda og barna hennar í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kæranda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þá hefur áður komið fram að kærandi hafi smitast af Covid-19 hér á landi en að henni hafi batnað og heilsist vel. Þá hafi A og B dvalið með kæranda á meðan hún var lasin en ekki sýnt einkenni.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og barna hennar. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hennar þangað.

Í 5. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, þar sem fjallað er um framkvæmd ákvörðunar, kemur fram að ef útlendingur hefur gilda heimild til dvalar í öðru EES-eða EFTA-ríki skal hann fluttur þangað. Þar sem fyrir liggur að kærandi hefur heimild til dvalar á Ítalíu telur kærunefnd rétt að taka sérstaka afstöðu til þess hvort ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi í vegi fyrir því að kærandi og börn hennar verði flutt til Ítalíu.

Við mat á aðstæðum á Ítalíu hefur kærunefnd tekið mið af þeim upplýsingum sem liggja fyrir um Ítalíu og skoðaðar hafa verið vegna fyrri úrskurða kærunefndar í tengslum við endursendinga einstaklinga til Ítalíu.

Með vísan til upplýsinga sem áður hefur verið tekin afstaða til um aðstæður á Ítalíu og nýlegra heimilda um aðstæður einstaklinga sem hafa ótímabundna heimild til dvalar á Ítalíu er það niðurstaða nefndarinnar að 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hennar til Ítalíu.

Athugasemdir kæranda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Kærandi gerir í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum hennar og barna hennar. Hvað varðar viðbótarathugasemd kæranda, sem fram kom í pósti hennar til kærunefndar þann 10. desember 2020, tekur kærunefnd fram að engin sjálfstæð ákvörðun hefur verið tekin um brottvísun og endurkomubann kæranda og barna hennar inn á Schengen-svæðið. Verður því ekki fjallað nánar um þá athugasemd í þessu máli. Að því er varðar vísun kæranda til úrskurða kærunefndar KNU20010045, frá 25. júní 2020, og KNU20090024, frá 13. nóvember 2020 þá telur kærunefnd að málsatvik og aðstæður aðila þeirra mála séu ekki sambærileg þeim aðstæðum sem eiga við í máli kæranda og barna hennar. Að öðru leyti hefur kærunefnd að framan tekið afstöðu til annarra athugasemda kæranda að því leyti sem þær kunna að hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 8. mars 2020 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar og barna hennar um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda og börnum hennar því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 5. mgr. 106. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi og börn hennar eru við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Í ljósi COVID-19 faraldursins er athygli kæranda einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hennar.

Athygli er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hennar eru staðfestar. Lagt er fyrir kæranda og börn hennar að hverfa af landi brott. Kæranda og börnum hennar er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and her children are affirmed. The appellant and her children are requested to leave the country. The appellant and her children have 30 days to leave the country voluntarily.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

Sindri M. Stephensen                                         Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum