Hoppa yfir valmynd
1. desember 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Aukið fé til uppbyggingar Landspítala skiptir sköpum

Landspítali
Landspítali

Hægt verður að bjóða út fullnaðarhönnun meðferðarkjarna nýs Landspítala, gatna- og lóðaframkvæmdir við sjúkrahótelið og byggingu þess, gangi eftir áform stjórnvalda um stóraukið fé í fjárlögum næsta árs til uppbyggingar Landspítala. Þetta kom fram í máli Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra á ráðstefnu samtakanna Spítalinn okkar fyrir helgi.

Ráðherra rakti í stuttu máli hvernig áform um byggingu nýs Landspítala hafa þróast frá því að málið komst á dagskrá um síðustu aldamót, m.a. hvernig áform um framkvæmdir hefðu verið endurskoðuð og verulega dregið úr áætluðu umfangi verkefnisins.

Sem betur fer hefur það vit og strit sem lagt hefur verið í þennan langa aðdraganda ekki farið í súginn. Ekki er lengur deilt um þörf, skipulag, byggingamagn eða staðsetningu. Deiliskipulag, svæðisskipulag og aðalskipulag Reykjavíkurborgar hefur verið samþykkt miðað við uppbyggingu Landspítala við Hringbraut. Staðfesting Skipulagsstofnunar liggur fyrir og vilji Alþingis er skýr hvað þetta varðar, sem meðal annars var innsiglaður í vor þegar ráðist var í útboð á fullnaðarhönnun sjúkrahótels við Hringbraut“ sagði ráðherra meðal annars.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherraKristján Þór segir að viljann til framkvæmda hafi ekki vantað heldur færar leiðir til að fjármagna framkvæmdirnar skynsamlega þannig að stöðu ríkissjóðs sé ekki stefnt í voða. Nú hafi skapast svigrúm sem nýta eigi í mikilvæg verkefni og þar sé uppbygging Landspítalans forgangsmál: „...í gær voru kynnt þau ánægjulegu tíðindi að ríkisstjórnin hyggst bæta inn í fjárlagafrumvarpið 875 milljónum króna til uppbyggingar Landspítala – og ég á ekki von á öðru en að Alþingi samþykki þessa breytingu. Þetta þýðir að í fjárlögum næsta árs verða 945 milljónir króna til verksins sem gerir kleift að bjóða út fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans, bjóða út gatna- og lóðaframkvæmdir við sjúkrahótelið og bjóða út framkvæmdina við sjálfa byggingu sjúkrahótelsins.“

Samkvæmt uppfærðri framkvæmdaáætlun og miðað við verðlag núna er heildarkostnaður við sjúkrahúsbyggingarnar; þ.e. meðferðarkjarnann, rannsóknarhúsið og sjúkrahótelið, rúmir 48 milljarðar króna sem dreifist á sjö ár.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum