Hoppa yfir valmynd
25. maí 2023

Mál nr. 138/2023 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 138/2023

Fimmtudaginn 25. maí 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. mars 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. febrúar 2023, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. apríl 2022 og var umsóknin samþykkt 24. maí 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. febrúar 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði ekki mætt í boðað viðtal hjá stofnuninni.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. mars 2023. Með bréfi, dags. 29. mars 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. apríl 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. apríl 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi ekki mætt í viðtal hjá Vinnumálastofnun þann 14. febrúar 2023 þar sem hún hafi lent í slysi í byrjun þess mánaðar. Fyrst eftir slysið hafi ekkert verið að hrjá hana og því hafi hún ekki farið á spítala. Eftir nokkra daga hafi kærandi byrjað að fá höfuðverk og verk í mænuna sem hafi varað í tvær vikur. Kærandi hafi fengið skráð veikindaleyfi á tímabilinu 8. til 13. febrúar 2023 en eftir þann tíma hafi heilsa hennar því miður ekki lagast. Það sé ástæða þess að kærandi hafi ekki mætt til Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 28. apríl 2022. Með erindi, dags. 24. maí 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Kærandi hafi verið boðuð til viðtals hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík klukkan 13:00 þann 9. febrúar 2023. Kæranda hafi verið tjáð að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á netfang kæranda, með skilaboðum í farsíma og með tilkynningu á ,,Mínum síðum“ þann 8. febrúar klukkan 06:49. Þann 9. febrúar hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda. Kærandi hafi sagst vera veik og gæti því ekki mætt til umrædds viðtals. Kærandi hafi óskað eftir að henni yrði fundinn nýr viðtalstími. Tölvupósti þessum hafi verið svarað af starfsmanni Vinnumálastofnunar sem hafi óskað eftir því að kærandi myndi afhenda stofnuninni læknisvottorð.

Kærandi hafi verið boðuð til viðtals að nýju klukkan 10:30 þann 14. febrúar. Aftur hafi kæranda verið tjáð að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send þann 13. febrúar klukkan 09:11 á netfang kæranda, með skilaboðum í farsíma og með tilkynningu á „Mínum síðum“. Sama dag, eða þann 13. febrúar, hafi kærandi sent Vinnumálastofnun tölvupóst og greint stofnuninni frá því að hún hefði farið til útlanda með stuttum fyrirvara. Kærandi hafi skráð sig í orlof á tímabilinu 13. febrúar til 28. febrúar 2023 í gegnum „Mínar síður“ þann 13. febrúar. Tölvupósti þessum hafi verið svarað og kæranda greint frá því að þar sem hún hefði nú boðað forföll sín í viðtal í tvö skipti á stuttum tíma yrði mál hennar tekið fyrir hjá Greiðslsutofu Vinnumálastofnunar.

Þann 14. febrúar hafi Vinnumálastofnun borist læknisvottorð frá kæranda, útgefið 13. febrúar. Þar komi fram að kærandi hafi verið með öllu óvinnufær á tímabilinu 8. febrúar til 13. febrúar. Með erindi, dags. 14. febrúar 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs viðtals þann sama dag. Áréttað hafi verið að hefði atvinnuleitandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Engar frekari skýringar hafi þó borist frá kæranda. Kæranda hafi því með erindi, dags. 28. febrúar 2023, verið tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hafi ekki mætt til boðaðs viðtals.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. er svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hún verið boðuð til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 9. febrúar 2023 en áður hafi hún tilkynnt stofnuninni um veikindi. Síðar hafi kærandi afhent stofnuninni læknisvottorð veikindum sínum til stuðnings. Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt til viðtals stofnunarinnar hafi hún verið boðuð að nýju til viðtals sem hafi átt að fara fram þann 14. febrúar. Kærandi hafi hins vegar ekki heldur mætt þá. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þess að hafa ekki mætt til viðtals þann 14. febrúar. Ákvæði 1. mgr. 58. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur þeirra til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo að unnt sé að aðstoða umsækjanda um atvinnuleysisbætur við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, á þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boðar hann til.

Þær skýringar kæranda sem hún hafi veitt Vinnumálastofnun á því að hafa ekki mætt til boðaðs viðtals á þjónustuskrifstofu þann 14. febrúar lúti að því að hún hafi skyndilega þurft að ferðast til útlanda. Kærandi hafi skráð sig í orlof á tímabilinu 13. febrúar til 28. febrúar í gegnum „Mínar síður“ þann 13. febrúar, eða sama dag og hún hafi fengið boðun til umrædds viðtals. Að mati Vinnumálastofnunar geti slíkar skýringar ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Skyldur atvinnuleitenda til að verða við boðun Vinnumálastofnunar séu ríkar og atvinnuleitendur geti að mati stofnunarinnar ekki skráð sig í orlof á sama tíma og þeir hafi verið boðaðir til stofnunarinnar. Í þessu sambandi sé ítrekað að með þessu hafi kærandi hafnað því að mæta til viðtals hjá stofnuninni í annað skiptið á skömmum tíma. Fyrir úrskurðarnefndinni hafi kærandi veitt þær skýringar á fjarveru sinni að hún hafi verið að kljást við veikindi. Fyrir liggi læknisvottorð þar sem kærandi sé sögð óvinnufær á tímabilinu 8. febrúar til 13. febrúar. Viðtal það er kærandi hafi ekki mætt til hafi átt að fara fram þann 14. febrúar, eða degi eftir að veikindum kæranda samkvæmt vottorði hafi lokið. Kærandi hafi þó greint frá því fyrir úrskurðarnefndinni að hún hafi enn verið að kljást við veikindi þegar umrætt viðtal hafi átt að fara fram þann 14. febrúar. Kærandi hafi svo skráð sig í orlof á tímabilinu 13. febrúar til 28. febrúar.

Í ljósi alls framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa hafnað því að mæta í viðtal hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og því beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 13. febrúar 2023 boðuð í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var tjáð að skyldumæting væri í viðtalið og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var kæranda greint frá því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hefur borið því við að hafa enn verið að jafna sig eftir slys sem hafi átt sér stað í byrjun febrúar 2023.

Fyrir liggur læknisvottorð, útgefið 13. febrúar 2023, þar sem fram kemur að kærandi hafi verið óvinnufær með öllu vegna sjúkdóms á tímabilinu 8. til 13. febrúar 2023. Læknisvottorðið barst Vinnumálastofnun 14. febrúar 2023. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun 13. febrúar 2023, eða sama dag og hún var boðuð í viðtalið, að hún hefði farið til útlanda með stuttum fyrirvara og hafi svo skráð sig í orlof dagana 13. til 28. febrúar 2023. 

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun. 

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. febrúar 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

___________________________________

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum