Hoppa yfir valmynd
24. júní 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Skipa verkefnastjórn vegna heildarendurskoðunar á þjónustu við eldra fólk

Ólafur Þór Gunnarsson, formaður verkefnastjórnarinnar - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hafa skipað verkefnastjórn sem hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila og forgangsraða og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem lögð verði fram á Alþingi vorið 2023.

Ólafur Þór Gunnarsson er formaður verkefnastjórnarinnar. Aðrir meðlimir eru:

  • Birna Sigurðardóttir fulltrúi félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, án tilnefningar.
  • Elsa B. Friðfinnsdóttir fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, án tilnefningar.
  • Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, án tilnefningar
  • Guðmundur Axel Hansen tilnefndur af fjármálaráðuneytinu.
  • Marta Guðrún Skúladóttir tilnefnd af fjármálaráðuneytinu.
  • Kjartan Már Kjartansson tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
  • Sigrún Ingvarsdóttir tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
  • Helgi Pétursson tilnefndur af Landssambandi eldri borgara.

Þegar aðgerðaáætlun liggur fyrir skal verkefnastjórnin vinna skipulega að innleiðingu og framkvæmd hennar, meðal annars með tillögum um hvaða breytingar á lögum og reglugerðum þarf að ráðast í til að ná þeim markmiðum sem sett eru fram.

Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21. júní af félags- og vinnumarkaðsráðherra, heilbrigðisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, ásamt fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsambands eldri borgara.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum