Hoppa yfir valmynd
24. október 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Staðall um launajafnrétti kynjanna

Jóhanna Grétar og Hannes við undirritun um jafnlaunavottunFélags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðals sem notaður verði til að sannreyna hvort launa- og starfsmannastefna stofnana og fyrirtækja samræmist stefnu um launajafnrétti kynja og jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. Atvinnurekendur sem uppfylla skilyrði staðalsins geta síðan fengið formlega vottun fyrir því að launa- og starfsmannastefna þeirra samræmist lögum um jafnrétti kynjanna.

Í lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem samþykkt voru 18. mars síðastliðinn er ákvæði til bráðabirgða um að félags- og tryggingamálaráðherra skuli, í samvinnu við samtök aðila vinnumarkaðarins, sjá til þess að þróað verði sérstakt vottunarkerfi á framkvæmd stefnu um launajafnrétti og framkvæmd stefnu um jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. Bókun sama efnis fylgdi kjarasamningum landssambanda Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins 17. febrúar síðastliðinn.

Viðræður hafa átt sér stað að undanförnu milli fulltrúa félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um framkvæmd bráðabirgðaákvæðis laganna og bókunarinnar. Niðurstaðan varð sú að fela Staðlaráði Íslands umsjón með gerð staðalsins og er miðað við að hann verði tekinn í notkun í byrjun árs 2010.

Vonir standa til þess að staðallinn verði atvinnurekendum stuðningur og hvatning til þess að uppfylla ákvæði laga um jafnan rétt karla og kvenna. Þeir muni sjá ávinning í því að fela óháðum vottunaraðilum úttekt á launa- og starfsmannastefnu sinni á kerfisbundinn hátt því þannig verði hafið yfir allan vafa að þeir uppfylli ákvæði laganna.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum