Hoppa yfir valmynd
24. október 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Viðurkenning Jafnréttisráðs 2008

Viðurkenning Jafnréttisráðs 2008
Viðurkenning Jafnréttisráðs 2008

Alcoa Fjarðaál hlaut í dag árlega viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir störf sín í á sviði jafnréttismála. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti verðlaunin. Í ávarpi sem hún flutti við þetta tækifæri sagði hún meðal annars að stefna Alcoa um að ráða að jöfnu konur og karla til starfa í fyrirtækinu hefði verið áberandi frá upphafi í starfsemi þess. Árangurinn væri sá að 28% af 450 starfsmönnum væru konur, 34% í framleiðslustörfum og 27% í framkvæmdastjórn. „Þetta er besti árangur í jafnréttismálum sem náðst hefur innan Alcoa samsteypunnar og líkur á að um heimsmet í áliðnaðinum sé að ræða.“

Í ávarpi sínu beindi ráðherra sjónum að jafnréttislögunum sjálfum og því meginmarkmiði þeirra að tryggja konur og karla gegn því að vera mismunað á grundvelli kynferðis. Hún sagði helstu réttindi laganna snúa að vinnumarkaðinum og felast í réttindum til launajafnréttis, til endurmenntunar, símenntunar og starfsþjálfunar á vinnustöðum og til starfa þannig að störfum sé ekki skipt í kvenna- og karlastörf. „Í stuttu máli þá eiga jafnréttislög að tryggja öllu launafólki, konum og körlum, jafnrétti hvar svo sem það starfar. Við vitum að víða hallar á konur og að það þarf markvissa stefnumótun og ötult starf til að ná árangri á sviðum þar sem við ævagamlar hefðir og rótgrónar venjur er að etja. Þess vegna fögnum við ávallt þegar árangur næst.“

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, tók við verðlaununum úr hendi ráðherra, postulínsstyttu eftir Guðrúnu Indriðadóttur sem ber heitið Snúum bökum saman.

Tenging frá vef ráðuneytisinsÁvarp Jóhönnu Sigurðardóttur við afhendingu viðurkenningar Jafnréttisráðs 2008

Skjal fyrir Acrobat ReaderGreinargerð Jafnréttisráðs um viðurkenninguna



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum