Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2022 Utanríkisráðuneytið

Leitað að verkefnastjóra fyrir trjáræktarátak í Afríku

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Rauði krossinn á Íslandi styður trjáræktarátak Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Afríku. Stefnt er að því að planta og verja hundruð milljóna trjáa næsta áratuginn í samræmi við svæðisbundnar áætlanir. Rauði krossinn á Íslandi leitar að verkefna- og samhæfingarstjóra fyrir trjáræktarátakið.

Stefnt er að því að planta og verja 500 milljóna trjáa á ári, næstu tíu árin, í samræmi við svæðisbundnar áætlanir. Átakinu er ætlað að stuðla að aðlögun og mildun loftslagsbreytinga. Stuðningur Rauða krossins á Íslandi felst meðal annars í stuðningi við stórt trjáræktarverkefni í Sierra Leóne (sjá fyrri frétt), þátttöku í tæknilegum vinnuhóp framtaksverkefnisins og stuðningi við stöðu verkefna- og samhæfingarstjóra framtaksverkefnisins en sú staða hefur nú verið auglýst.  

Verkefna- og samhæfingarstjórinn mun vinna innan teymis alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Afríku með aðsetur í Sierra Leóne. Starfið krefst ferðalaga um Afríku sunnan Sahara þar sem það felur í sér samhæfingu verkefna sem falla undir framtaksverkefnið og tæknilega aðstoð til landsfélaga sem innleiða trjáræktarverkefni. Starfið felur einnig í sér eftirlit og úttektir, stefnumótun, áætlanagerð og fjáröflun. Nánar má lesa um stöðuna á alfred.is

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum