Hoppa yfir valmynd
2. desember 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Umsækjendur um embætti forstjóra HeilbrigðisstofnunarVesturlands

Fjórir umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem velferðarráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í byrjun nóvember síðastliðnum.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

  • Birkir Már Kristinsson sjúkraþjálfari
  • Erna Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur
  • Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur
  • Jóhannes Finnur Halldórsson viðskiptafræðingur

Þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana. 

Forstjóri ber ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Vesturlands starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands sem nær yfir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Hval­fjarðar­sveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundar­fjarðar­bæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Stranda­byggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Heilbrigðisstofnun Vesturlands er með fjölmennustu vinnustöðum á Vesturlandi þar sem starfa að jafnaði tæplega 400 manns og er ársvelta stofnunarinnar um fjórir milljarðar króna. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum