Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Er einnota óþarfi? – Átak Umhverfisstofnunar komið í loftið

Umhverfisstofnun setti nýlega af stað átak til að vekja athygli á mikilvægi þess að draga úr notkun á einnota plasti. Með átakinu eru landsmenn hvattir til að taka höndum saman um að hætta notkun á einnota vörum þar sem það er mögulegt.

Hvatningunni er m.a. komið áleiðis á samfélagsmiðlum þar sem sjá má myndræn skilaboð sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um hvort þær einnota vörur sem það notar séu nauðsynlegar, s.s. plaströr, plastpokar og plastborðbúnaður.

Samráðsvettvangur um plastmálefni skilaði tillögum sínum um aðgerðir í plastmálefnum til umhverfis- og auðlindaráðherra þann 1. nóvember síðastliðinn. Var þar m.a. kveðið á um að hrundið yrði af stað vitundarvakningu um ofnotkun á plasti og er átakið liður í því.

„Við eigum að hætta að nota einnota vörur sem óþarfi er að nota. Það er ákaflega mikilvægt að fólk og fyrirtæki endurskoði það hvernig það nýtir sér þær,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Þetta eru hlutir sem fylgja okkur ef til vill nokkur andartök en geta enst í tugi og hundruð ára sem úrgangur, með afdrifaríkum afleiðingum fyrir lífríki og náttúru.“

Meðal annarra aðgerða sem ráðist hefur verið í er frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi um bann við afhendingu burðarplastpoka í verslunum. Þá verður fljótlega auglýst eftir tilnefningum til nýrrar viðurkenningar fyrir framúrskarandi plastlausar lausnir sem veitt verður í tengslum við Plastlausan september í haust.

 

 

Frétt Umhverfisstofnunar


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

11. Sjálfbærar borgir og samfélög
12. Ábyrð neysla og framleiðsla
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum