Hoppa yfir valmynd
31. október 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 81/2014 úrskurður 31. október 2014

Mál nr. 81/2014                    Eiginnafn: Rex

 

Hinn 31. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 81/2014 en erindið barst nefndinni 28. október:

Orð sem enda á x í íslensku fá ekki endinguna s í eignarfalli eintölu, samanber til dæmis orðin box og kex (nefnifall eintölu) sem eru eins í eignarfalli. Á sama hátt tekur eiginnafnið Rex (kk.) íslenskri beygingu í eignarfalli, Rex, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Rex (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum