Hoppa yfir valmynd
4. mars 2022 Utanríkisráðuneytið

Úkraína: Tæplega 300 milljónir króna frá íslenskum stjórnvöldum til mannúðaraðstoðar

Utanríkisráðherra hefur tilkynnt um viðbótarframlög til mannúðaraðstoðar vegna Úkraínu að heildarupphæð eina milljón evra, eða um 145 milljónum íslenskra króna. Framlagið skiptist milli þriggja samstarfsaðila íslenskra stjórnvalda: Rauða krossins á Íslandi - 45 milljónir, Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) – 50 milljónir, og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) – 50 milljónir. Heildarframlög Íslands til mannúðaraðstoðar vegna Úkraínu nema því tveimur milljónum evra, tæpum 300 milljónum króna. Auk þess er stefnt að því að styðja við áætlun um efnahagslega neyðaraðstoð til Úkraínu sem Alþjóðabankinn hefur í undirbúningi.

Neyð fer vaxandi í Úkraínu með degi hverjum í kjölfar innrásar Rússa. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áætlar að rúm milljón úkraínskra borgara sé þegar á flótta, meirihluti þeirra konur og börn. Þá eru ýmsir innviðir samfélagsins í lamasessi, þar með talin heilbrigðisþjónusta. Áætlað er að um 80 þúsund konur í Úkraínu fæði börn á næstu þremur mánuðum og óttast er að margar þeirra búi við skert aðgengi að heilbrigðisþjónustu.

Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) hefur áratuga reynslu af starfi í Úkraínu og nágrannaríkjum. Stofnunin gegnir lykilhlutverki þegar kemur að þjónustu á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis, ekki síst fæðingarhjálp og mæðravernd. Jafnframt veitir stofnunin aðstoð við þolendur kynferðisofbeldis.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) starfar í Úkraínu og nágrannaríkjum. Í ljósi þess að börn eru stór hluti fólks á flótta hefur stofnunin sett af stað teymi sem huga að vernd barna. Teymin eru með hreyfanlega staðsetningu og gegna því hlutverki að veita börnum sálrænan stuðning og aðra nauðsynlega þjónustu.

Rauði krossinn á Íslandi (RKÍ) starfar í samvinnu við Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC), Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) og landsfélög í nágrannaríkjum. Fjármagnið vegna Úkraínu kemur til viðbótar við samningbundin framlög utanríkisráðuneytisins og RKÍ um alþjóðlega mannúðaraðstoð.

Áður hafði utanríkisráðherra tilkynnt um eina milljón evra í mannúðaraðstoð vegna Úkraínu sem skiptist jafnt á milli Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC), Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum