Hoppa yfir valmynd
10. mars 2004 Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs

Benedikt Jónsson, sendiherra, afhenti í dag 10. mars 2004, Askar Akayev, forseta Kirgisíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Kirgisíu með aðsetur í Moskvu.

Í tengslum við afhendingu trúnaðarbréfs í Bishkek eru fyrirhugaðir fundir sendiherra með utanríkisráðherra, orkumálaráðherra og einnig iðnaðar- og viðskiptaráðherra Kirgisíu. Sendiherra mun m.a. kynna framboð Íslands til öryggisráðs SÞ árin 2009-2010 og kanna möguleika á viðskiptum milli landanna og samstarfi á sviði orkumála. Ísland og Kirgisía stofnuðu stjórnmálasamband 2. apríl 2001.

Benedikt Jónsson er fyrsti sendiherra Íslands sem afhendir trúnaðarbréf í Kirgisíu.

Upplýsingar um Kirgisíu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum