Hoppa yfir valmynd
18. apríl 2008 Dómsmálaráðuneytið

Guðgeir Eyjólfsson skipaður sýslumaður í Kópavogi

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Guðgeir Eyjólfsson, sýslumann í Keflavík, til að vera sýslumaður í Kópavogi frá og með 1. júní 2008.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Guðgeir Eyjólfsson, sýslumann í Keflavík, til að vera sýslumaður í Kópavogi frá og með 1. júní 2008.    

Þrettán umsóknir bárust um embættið. Auk Guðgeirs sóttu eftirtaldir um:

Birna Salóme Björnsdóttir, aðstoðardeildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík
Bogi Hjálmtýsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins í Hafnarfirði
Brynjar Kvaran, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Kópavogi
Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
Halldór Frímannsson, sérfræðingur - lögmaður á Fjármálasviði Reykjavíkurborgar
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum
Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði
Ólafur Hallgrímsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins á Ísafirði
Sigríður Eysteinsdóttir, löglærður fulltrúi í sifja- og skiptadeild sýslumannsins í Reykjavík
Úlfar Lúðvíksson, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Reykjavík
Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík

 

 

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 18. apríl 2008



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum