Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2010 Utanríkisráðuneytið

Samráð um upplýsingamál

 

Fréttatilkynning frá iðnaðarráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu

Samráð um upplýsingarmál

Samráðshópur stjórnvalda og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu hittist í dag í utanríkisráðuneytinu til að ræða samstarf og aðgerðir til að bregðast við erlendri fjölmiðlaumfjöllun um Ísland vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Markmið hópsins er að tryggja að frá Íslandi fari áfram réttar og yfirvegaðar upplýsingar um stöðu mála en nokkuð hefur borið á að umfjöllun í erlendum fjölmiðlum hafi verið í æsifréttastíl. Því er mikilvægt, ekki síst með hagsmuni ferðaþjónustunnar í huga, að halda áfram að koma upplýsingum á framfæri um að öryggi á Íslandi sé tryggt, að vel fari um þá ferðamenn sem hér eru og að íslenskt samfélag gangi að mestu sinn vanagang, þó vissulega séu menn meðvitaðir um áhrif eldgossins. 

Í hópnum eiga sæti fulltrúar iðnaðarráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins, Almannavarna, Ferðamálastofu, Ferðamálaráðs, Útflutningsráðs, Reykjavíkurborgar og Samtaka ferðaþjónustunnar, auk fulltrúa Icelandair og Iceland Express.

Ferðamálastofa og Höfuðborgarstofa hafa þegar sett í gang verkefni til að koma á framfæri upplýsingum í gegnum samfélagslega miðla s.s. á facebook og víðar, auk þess sem Höfuðborgarstofa hefur boðið þeim ferðalöngum sem eru strandaglópar á Íslandi upp á frítt gestakort Reykjavíkur sem veitir þeim ókeypis aðgang á söfn, í sund og strætó o.fl.  

Sett hefur verið upp miðstöð fyrir erlenda fréttamenn í stjórnstöð almannavarna en fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins fer með erlend fjölmiðlasamskipti í stjórnstöðinni. Auk þess hafa almannavarnir sett upp aðstöðu fyrir erlenda blaðamenn á Hvolsvelli.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum