Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 67/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 18. febrúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 67/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20120048

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. desember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. desember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði ógilt og málið sent til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 28. júlí 2020 ásamt syni sínum, [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A). Þar sem A er ríkisborgari [...] ákvað Útlendingastofnun að taka umsókn hans til efnismeðferðar en honum var synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 4. desember 2020. Hefur sú ákvörðun jafnframt verið kærð til kærunefndar. Við umsókn framvísaði kærandi ungversku persónuskilríki með gildistíma til 10. október 2022 og ungversku flóttamannavegabréfi með gildistíma til 15. júlí 2021. Þann 14. september 2020 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Ungverjalandi. Í svari frá ungverskum yfirvöldum, dags. 29. september 2020, kom fram að kæranda hefði verið veitt staða flóttamanns í Ungverjalandi þann 18. júlí 2007. Verndin sé enn í gildi og hafi kærandi síðast fengið útgefin ferðaskilríki þann 21. júlí 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 25. ágúst 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 4. desember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 8. desember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 22. desember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 8. janúar 2021 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Ungverjalandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ungverjalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr., sbr. 3. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ungverjalands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð er vísað til viðtals við kæranda hjá Útlendingastofnun en þar hafi hann greint frá því að hafa búið í Ungverjalandi frá árinu 2007. Til að byrja með hafi líf hans í landinu gengið bærilega miðað við aðstæður og kærandi hafi kvænst og eignast soninn A. Kærandi og eiginkona hans hafi skilið árið 2012 en hún sé nú búsett í Bretlandi. Kvað kærandi að eftir að ríkisstjórn Viktor Orban hafi komist til valda í landinu hafi verulega farið að halla undan fæti og að aðstæður hans og annarra flóttamanna í landinu hafi orðið sífellt verri. Stjórnvöld hafi breytt lögum um flóttamenn til hins verra og að þau haldi úti stöðugum áróðri gegn útlendingum í landinu. Þá hafi kærandi lýst áhyggjum af því að nú sé orðið refsivert að aðstoða umsækjendur um alþjóðlega vernd og að stefna stjórnvalda hafi haft mikil neikvæð áhrif á hann. Það hafi gengið erfiðlega fyrir kæranda að fá vinnu en atvinnuauglýsingar geri iðulega kröfu um að að umsækjendur séu ungverskir eða EES-borgarar.

Áður en kærandi hafi yfirgefið landið hafi hann verið í hlutastarfi hjá samtökum sem aðstoði meðal annars flóttamenn í Ungverjalandi en laun hans hafi ekki dugað fyrir framfærslu hans og A. Þá hafi kærandi greint frá hindrunum sem hann hafi orðið fyrir þegar hann hafi þurft að nýta sér heilbrigðisþjónustu auk þess sem hann hafi mætt hindrunum þegar hann hafi ætlað að stofna bankareikning þar sem hann væri frá hættulegu landi. Kvaðst kærandi óttast um öryggi sitt og sonar síns þar í landi vegna fjandsamlegrar stefnu stjórnvalda í garð útlendinga. Greindi kærandi frá því að eina leiðin til að lifa af sem flóttamaður í Ungverjalandi væri í gegnum Ungverja. Kærandi hafi ekki getað útvegað sér og A leiguhúsnæði fyrr en hann hafi byrjað í sambandi með ungverskri konu. Hann hafi ekki viljað vera með konunni en hafi neyðst til þess til að tryggja lífsviðurværi og öryggi hans og A. Kvaðst kærandi hafa ítrekað orðið fyrir kynþáttafordómum í Ungverjalandi. Hann hafi reynt að sækja um ríkisborgararétt en verið tjáð að hann uppfyllti ekki skilyrði um varanlegt heimilisfang.

Meginrök kæranda fyrir því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eru þau að ekki hafi verið tekið nægt tillit til hagsmuna A og að ekki hafi verið farið með mál þeirra eins og annarra barnafjölskyldna. Þá byggir kærandi á því að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu til að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli síðastnefnds ákvæðis, en kærandi vísar í því sambandi til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar. Í þeirri greinargerð telur kærandi að af úrskurðum kærunefndar útlendingamála og umfjöllun um aðstæður útlendinga í Ungverjalandi sé ómögulegt að komast að annarri niðurstöðu en að sérstakar ástæður eigi við, þ.e. að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar.

Kærandi gerir athugasemdir við tilvísun Útlendingastofnunar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU17030060. Sá úrskurður hafi verið birtur um hálfu ári á undan þeim úrskurðum kærunefndar sem kærandi telji að hafi fordæmisgildi í málinu en þar hafi umsóknum einstaklinga með alþjóðlega vernd í Ungverjalandi verið vísað til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi vísar kærandi m.a. til úrskurða í málum nr. KNU17070050 og KNU17080006. Þá hafi verið gerðar breytingar á lögum og reglugerð um útlendinga árið 2017 og 2018, eftir að úrskurður kærunefndar í máli nr. KNU17030060 hafi verið kveðinn upp. Vísar kærandi til rökstuðnings í ákvörðun Útlendingastofnunar um að hann hafi dvalið lengi í Ungverjalandi og því haft lengri tíma til að aðlagast samfélaginu. Kærandi kveður rétt að við slíkar aðstæður sé líklegra að einstaklingar nái að festa rætur og verða hluti af samfélaginu. Það sé hins vegar ekki raunin hjá kæranda og A. Af frásögn kæranda að dæma hafi hann gert allt sem í hans valdi stóð til að aðlagast ungversku samfélagi en hafi þrátt fyrir það verið háður ungverskri konu um húsnæði. Kærandi hafi ekki náð endum saman og búið við stöðugan ótta vegna fordóma og útlendingaandúðar sem stjórnvöld ali á. Telur kærandi þvert á móti að sú staðreynd að hann hafi ekki náð að aðlagast ungversku samfélagi þrátt fyrir að hafa búið þar í 12 ár styðji frekar við kröfu hans um að mál hans verið tekið til efnismeðferðar samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda sé útséð að hann muni ná að lifa mannsæmandi lífi í landinu meðan ríkjandi stjórnvöld séu við völd.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins hefur kæranda verið veitt staða flóttamanns í Ungverjalandi sem að mati kærunefndar felur í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Skilyrði ákvæðisins eru því uppfyllt og hefur kærandi heimild til dvalar í Ungverjalandi.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að þar sem kærandi hafi haft alþjóðlega vernd í Ungverjalandi síðan árið 2007 hafi hann átt raunhæfan möguleika á að aðlagast ungversku samfélagi og hafi gert það. Þá verði ekki séð að kærandi hafi orðið eða eigi á hættu að verða fyrir alvarlegri mismunun í landinu með hliðsjón af þeim viðmiðum sem sett séu fram í reglugerð um útlendinga. Kærandi hafi unnið á ungverskum vinnumarkaði og nýtt sér aðgengi að heilbrigðisþjónustu að einhverju marki. Hann hafi náð tökum á tungumálinu að einhverju leyti, kvænst ungverskri konu og átt með henni A sem sé fæddur og uppalinn í landinu. Þá hafi kærandi verið búsettur með annarri ungverskri konu. Var það mat Útlendingastofnunar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að ekki væru til staðar sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Á síðustu árum hefur kærunefnd útlendingamála úrskurðað í nokkrum fjölda mála einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Ungverjalandi. Með úrskurði kærunefndar í máli nr. KNU17030060, dags. 19. apríl 2017, staðfesti kærunefnd ákvörðun Útlendingastofnunar um að mál einstaklings sem hafði verið með alþjóðlega vernd í Ungverjalandi í tíu ár skyldi ekki tekið til efnismeðferðar hér á landi. Í niðurstöðu kærunefndar er m.a. vísað til þess að á þeim tíu árum sem kærandi hafði haft vernd í Ungverjalandi hafi hann haft tök á að aðlagast samfélaginu umfram þá sem þar hafi dvalið í styttri tíma. Með úrskurðum kærunefndar í málum nr. KNU17070049, KNU17080006, KNU17070050 og KNU17070041, dags. 10. og 24. október 2017, komst kærunefnd hins vegar að þeirri niðurstöðu að taka yrði mál kærenda til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun. Kemur m.a. fram í niðurstöðum þeirra úrskurða að í ljósi uppruna kærenda og með hliðsjón af upplýsingum um þær aðstæður sem biðu þeirra í Ungverjalandi hafi það verið mat kærunefndar að þeir muni eiga erfitt uppdráttar í Ungverjalandi sökum mismununar vegna kynþáttar og aðstæðna þeirra sem einstaklinga með alþjóðlega vernd. Þá hafi einn kærenda verið töluvert veikur og óvíst með virka vernd annars kæranda. Þeir einstaklingar sem um ræðir í framangreindum málum höfðu verið með vernd í Ungverjalandi í mismunandi langan tíma, eða frá níu mánuðum og upp í fimm ár. Af ofangreindum úrskurðum má ráða að lögskýringargögn sem lágu að baki frumvarpi sem varð að lögum nr. 81/2017 um breytingu á lögum um útlendinga, þá sérstaklega álit meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, hafi haft umtalsvert vægi fyrir þá áherslubreytingu sem þessir úrskurðir endurspegluðu.

Árið 2018 tók Útlendingastofnun að nýju ákvarðanir um að taka mál einstaklinga sem hlotið höfðu alþjóðlega vernd í Ungverjalandi ekki til efnismeðferðar þrátt fyrir fyrri fordæmi kærunefndar. Með úrskurðum í málum nr. KNU18070005, KNU18070022 og KNU18100003 frá 27. september og 6. nóvember 2018 komst kærunefnd að sömu niðurstöðu og áður, þ.e. að mál kærenda skyldu tekin til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun. Í framangreindum úrskurðum kærunefndar er m.a. tekið fram að niðurstaða í málunum sé byggð á heildstæðu mati á aðstæðum kærenda og fyrirliggjandi gögnum um stöðu einstaklinga sem hlotið hafi alþjóðlega vernd í Ungverjalandi. Í niðurstöðu máls nr. KNU18070005, kemur m.a. fram að samverkandi þættir leiði til þess að líta verði svo á að staða einstaklinga sem hlotið hafi alþjóðlega vernd í Ungverjalandi, sem séu af öðrum kynþætti en almenningur í landinu og hafi ekki aðlagast þar, sé verulega síðri en staða almennings þar í landi.

Í framangreindum úrskurðum kærunefndar frá árinu 2018 er jafnframt vísað til þess að af stöðu og hlutverki kærunefndar útlendingamála gagnvart Útlendingastofnun leiði að úrskurðir nefndarinnar séu bindandi sem fordæmi fyrir stofnunina. Kærunefnd telur þó rétt að líta til þess að nefndin er fjölskipað stjórnvald og að breytt skipan og túlkun nefndarinnar getur haft þær afleiðingar að aðstæður sem áður leiddu til þess að mál yrðu tekin til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi ekki slíka þýðingu lengur. Þá telur kærunefnd einnig rétt að líta til þess að þegar kærunefnd kvað upp tilvísaða úrskurði sína á árinu 2017 í málum einstaklinga sem voru handhafar alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi hafði reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga ekki tekið gildi. Sú reglugerð setti fram tiltekin viðmið um hvenær sérstakar ástæður séu til að taka umsóknir þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Fyrir gildistöku þeirrar reglugerðar byggði kærunefnd viðmið sín á lögskýringarsjónarmiðum sem m.a. tengdust markmiðum og tilgangi ákvæðisins og tilteknum ummælum sem komu fram á Alþingi við meðferð frumvarps um breytingu á lögum um útlendinga sem urðu að lögum nr. 81/2017. Við gildistöku reglugerðar nr. 276/2018 breyttust þessi viðmið og verulega dró úr þýðingu þeirra lögskýringarsjónarmiða sem kærunefnd hafði áður byggt viðmið sín á. Úrskurðir nefndarinnar sem kveðnir voru upp eftir gildistöku þessarar reglugerðar kunna því að hafa gefið úrskurðum nefndarinnar frá seinni hluta ársins 2017 í málum þeirra sem fengið höfðu alþjóðlega vernd í Ungverjalandi of mikið vægi. Með vísan til ofangreinds telur kærunefnd að þrátt fyrir að úrskurðir nefndarinnar séu bindandi fyrir Útlendingastofnun sé ekki óeðlilegt að stofnunin hafi nú, rúmum tveimur árum eftir að kærunefnd fékk slík mál síðast til meðferðar, aftur látið reyna á hvort túlkun nefndarinnar á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi breyst, sérstaklega ef stofnunin telur og færir rök fyrir að þær aðstæður sem kærunefnd taldi hafa áhrif á beitingu ákvæðisins, hafi breyst.

Í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þau mál sem komið hafa inn á borð stofnunarinnar undanfarið, þar sem einstaklingar eru með alþjóðlega vernd í Ungverjalandi, hafi verið metin með þeim hætti að málin hafa farið í efnismeðferð hjá stofnuninni en ekki í málsmeðferð á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Við meðferð sambærilegs máls og hér er til umfjöllunar sem kærunefnd úrskurðaði í þann 7. janúar sl. óskaði nefndin eftir þremur fyrri ákvörðunum Útlendingastofnunar þar sem sú var raunin. Auk ákvarðana í málunum óskaði kærunefnd eftir gögnum málanna sem sýndu fram á hvenær þeir einstaklingar hafi hlotið vernd í Ungverjalandi til að geta metið lengd dvalar þeirra þar í landi samanborið við dvöl kærenda í öðrum málum til meðferðar hjá kærunefnd. Samkvæmt þeim gögnum höfðu þeir einstaklingar sem um ræðir í ákvörðununum haft vernd í Ungverjalandi í um sex, átta og tíu ár. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli nr. 2019-19057 frá 15. nóvember 2019, var um að ræða einstæðan karlmann sem dvalið hafði í Ungverjalandi í um tíu ár.

Í því máli sem hér er til meðferðar greindi kærandi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa dvalið í Ungverjalandi frá því 2007, eða í 13 ár, unnið fyrir sér þar í landi, haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, þó með takmörkunum, og húsnæði. Líkt og fram kemur í hinni kærðu ákvörðun fer fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum einstaklinga í hverju máli og kærunefnd tekur undir það sjónarmið Útlendingastofnunar að með lengri dvalartíma einstaklinga í landinu megi ætla að þeir hafi haft tækifæri til að aðlagast samfélaginu umfram þá sem dvalið hafi í landinu í skemmri tíma, sbr. t.d. fyrrnefnda úrskurði kærunefndar í málum nr. KNU17030060 frá 17. apríl 2017 og umfjöllun kærunefndar í máli nr. KNU18100003.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 veitir stjórnvöldum nokkuð ríkt svigrúm til mats á því hvað felist í sérstökum ástæðum í skilningi ákvæðisins, á því hvaða sjónarmiðum skuli byggt við þetta mat og hvert skuli vera vægi þeirra. Þetta svigrúm takmarkast þó nú af ákvæðum reglugerðar nr. 276/2018 sem áður var vísað til enda eru þar sett fram í dæmaskyni tiltekin viðmið sem kærunefnd og Útlendingastofnun eru bundin af. Kærunefnd telur ljóst að þó að ákveðin sjónarmið hafi verið lögð til grundvallar við úrlausn mála á tilteknu sviði, þýðir það ekki að stjórnvöld séu bundin við það að leggja ávallt sömu sjónarmið til grundvallar við ákvörðun slíkra mála. Stjórnvöld eru þó bundin af réttmætisreglu stjórnsýsluréttar en af henni leiðir að sjónarmiðin skulu vera málefnaleg. Þá gerir jafnræðisreglan þá kröfu að við úrlausn mála skuli stjórnvöld gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að öll mál séu skoðuð sérstaklega og að ólíkar aðstæður búa að baki hverri umsókn. Stofnunin vísar til þess að þrátt fyrir að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Ungverjalandi hafi verið teknar til efnislegrar meðferðar undanfarið sé ekki þar með sagt að um breytta stjórnsýsluframkvæmd sé að ræða heldur ráði einstaklingsbundið mat þeirri ákvörðun stofnunarinnar. Þar sem aðstæður og aðbúnaður fólks í ríkjum heimsins taki sífelldum breytingum verði ekki hjá því komist að endurmeta stöðuna reglulega og bera saman ástandið þá og nú og leggja mat á hvort aðstæður og aðbúnaður þeirra sem sækja um eða hlotið hafa vernd í landinu, hafi breyst. Rík áhersla sé lögð á það að hver og ein umsókn sé ávallt metin á einstaklingsbundinn hátt og með tilliti til aðstæðna í því ríki sem einstaklingur hefur heimild til dvalar, sama hvaða ríki sé verið að meta.

Kærunefnd tekur undir framgreind sjónarmið stofnunarinnar, þ. á m. að dvalartími kæranda og aðlögun hans að samfélaginu í viðtökuríki geti haft áhrif á niðurstöðu máls og að nauðsynlegt sé að endurmeta aðstæður í viðtökuríki á reglubundinn hátt. Aftur á móti telur kærunefnd ekki ljóst af lestri ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda hvaða breytingar hafi orðið á aðstæðum þeirra sem hlotið hafi vernd í Ungverjalandi frá því ákvarðanir voru teknar í, að því er virðist, sambærilegum málum fyrir um ári síðan í málum einstaklinga sem höfðu haft vernd í Ungverjalandi í nokkurn fjölda ára og því haft tækifæri til að aðlagast samfélaginu líkt og kærandi í fyrirliggjandi máli. Kærunefnd barst bréf frá Útlendingastofnun, dags. 29. janúar 2021, þar sem frekari skýringar voru settar fram á ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærunefnd telur það skjal lýsa afstöðu stofnunarinnar til fyrri úrskurðar kærunefndar en ekki hafa aðra þýðingu fyrir þetta mál.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að ítarlegri rannsókn hefði þurft að fara fram á því hvað hefði breyst til batnaðar í Ungverjalandi og að greina hefði átt frá þeim meginsjónarmiðum sem lágu til grundvallar þess að þær breyttu aðstæður leiddu til annarrar niðurstöðu nú í því máli sem hér er til umfjöllunar. Kærunefnd telur því að rökstuðningi í hinni kærðu ákvörðun sé ábótavant, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga, hvað varðar breytta framkvæmd stofnunarinnar frá því að stofnunin tók mál, sem virðast í veigamiklum atriðum sambærileg, til efnismeðferðar fyrir um ári síðan.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda og rökstuðningi fyrir breyttri framkvæmd. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                 Bjarnveig Eiríksdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum