Hoppa yfir valmynd
9. september 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 99/2021 Úrskurður 9. september 2021

Mál nr. 99/2021                    Millinafn:       Eden

                                               Eiginnafn:     Eden (kvk.)

 

 

Hinn 9. september 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 99/2021 en erindið barst nefndinni 10. ágúst.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Eden er ekki dregið af íslenskum orðstofni og af þeirri ástæðu er ekki hægt að samþykkja Eden sem millinafn.

Kemur þá til álita hvort unnt sé að samþykkja nafnið sem eiginnafn. Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Eden (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Edenar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Eden er hafnað.

Beiðni um eiginnafnið Eden (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum