Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2007 Innviðaráðuneytið

Ræddi samgöngu- og fjarskiptamál á fundi á Hólmavík

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra boðaði til fundar um samgöngu og fjarskiptamál á Café Riis á Hólmavík í gærkvöld, miðvikudagskvöldið 10. janúar. Um áttatíu manns mættu til fundarins.

Fundur á Hólmavík
Um 80 manns sátu fund samgönguráðherra á Hólmavík.

Í ræðu sinni rakti ráðherra helstu viðfangsefni samgönguráðuneytisins og skýrði meðal annars tilkomu fjarskiptaáætlunar sem gildir til ársins 2010 en sú áætlun byggist á því að ríkið fjármagnar fjarskipti þar sem fyrirtæki geta ekki keppt um viðskipti. Í því samhengi nefndi ráðherra nýlegt útboð á fyrri hluta gsm farsímakerfisins á Hringveginum þar sem þjónusta hefur ekki verið fyrir hendi. Einnig hefur þegar farið fram útboð á útsendingum á Ríkissjónvarpinu í gegnum gervihnött. Með útsendingum um gervihnött eiga útsendingar Ríkissjónvarpsins að ná bæði til sjómanna og þeirra sem hingað til hafa ekki notið útsendinga Sjónvarpsins.

Ráðherra fór einnig yfir verkefni sem unnið er að eða er að ljúka í landshlutanum svo sem framkvæmdir við Vestfjarðarveg í Gufudalssveit og Djúpveg um Mjóafjörð og Reykjanes. Að lokum tilkynnti ráðherra að á allra næstu dögum verði vegur um Arnkötludal boðinn út og stefnt að því að verklok verði undir lok ársins 2008.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum