Hoppa yfir valmynd
8. maí 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 217/2018 Úrskurður

          KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 8. maí 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 217/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18030032

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. mars 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari Pakistan, (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. febrúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Belgíu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 42. gr. sömu laga. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju, með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 3. febrúar 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 2. febrúar 2018, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Belgíu. Þann 12. febrúar 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Belgíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 19. febrúar 2018 barst svar frá belgískum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 28. febrúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Belgíu. Ákvörðun var birt fyrir kæranda þann 6. mars 2018  og kærði hann ákvörðunina þann 21. mars 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 3. apríl 2018.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Belgíu. Lagt var til grundvallar að Belgía virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Belgíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Belgíu, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi flúið heimaríki sitt, Pakistan, vegna vandræða af viðskiptalegum toga. Fjölskylda hann sé stödd þar í landi og að hann hafi ekki talað við hana í tvo til þrjá mánuði. Þá greinir kærandi frá því að það yrði mikið mál fyrir hann að vera sendur aftur til Belgíu þar sem að máli hans hafi lokið fyrir um fimm árum síðan. Ekkert hafi verið gert í máli hans á sínum tíma og efast hann um að belgísk stjórnvöld myndu gera nokkuð í málum hans í dag. Kærandi hafi verið í Belgíu í fimm ár, sótt þar um vernd árið 2010 og fengið neikvæða niðurstöðu árið 2013. Aðstæður hans hafi ekki verið góðar, enga vinnu hafi verið að fá og hafi það valdið honum streitu. Þá hafi hann búið hjá vini sínum sem hafi síðar fengið fjölskyldu sína til sín og væri því ekki lengur pláss fyrir hann í hýbýlum hans.

Í greinargerð kæranda er að finna almenna umfjöllun um hæliskerfið í Belgíu. Í alþjóðlegum skýrslum komi fram að belgísk stjórnvöld hafa dregið úr lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd og fækkað svo plássum í móttökumiðstöðvum að til vandræða horfi en á sama tíma hafi þau verið að beita varðhaldi í meira mæli en áður. Yfirvöld í Belgíu hafi jafnframt fengið á sig áfellisdóma frá Mannréttindadómstól Evrópu fyrir að halda umsækjendum um alþjóðlega vernd of lengi í varðhaldi. Þá sé erfitt að finna lögfræðinga með næga þekkingu til að rökstyðja kærur með fullnægjandi hætti en áfrýjunarstigið (e. Council for Alien Law Litigation (CALL)) snúi örsjaldan við fyrstu ákvörðunum og beiti ekki að fullu heimildum sínum. Þá fái umsækjendur um alþjóðlega vernd mismunandi meðferð eftir því undir hvaða deild innan áfrýjunarstigsins mál þeirra falli en það hafi þessu til viðbótar, fengið á sig áfellisdóm frá Mannréttindadómstólnum sökum rangrar málsmeðferðar. Þá komi fram í skýrslum að mismunun sé algeng í Belgíu, sérstaklega gagnvart múslimum en einnig ákveðnum þjóðernislegum minnihlutahópum varðandi húsnæði, menntun og atvinnu. Þá kemur fram að belgísk stjórnvöld séu áfram að senda umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands í krafti Dyflinnarreglugerðarinnar og í nóvember á síðasta ári hafi tekið gildi lög í landinu sem víkki heimildir til varðhalds á umsækjendum og sniðgangi rétt þeirra til að kæra neikvæðar niðurstöður.

Krafa kæranda er byggð á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli hans í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til lögskýringargagna með ákvæðinu og nefnir að skoða þurfi sérstaklega hvort einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Af hálfu kæranda er einnig byggt á því að vegna aðbúnaðar og aðstæðna hans í Belgíu myndi endursending hans þangað brjóta gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ótækt sé því að senda kæranda til Belgíu, sbr. framangreinda umfjöllun um aðstæður hans þar í landi. Þá hafi kærandi fengið lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og bíði hans ekkert nema endursending til heimaríkis.

Til stuðnings varakröfu kæranda, um að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju, vísar kærandi til þess að rannsókn málsins og rökstuðningur hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar m.a. til þess að ekkert í málsgögnum bendi til þess að Útlendingastofnun hafi rannsakað eða aflað upplýsinga um það ástand sem bíði kæranda í heimaríki þegar belgísk stjórnvöld senda hann þangað.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að belgísk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Belgíu er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli. 

Greining á sérþörfum sbr. 25. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans hjá Útlendingastofnun. Af gögnum um heilsufar kæranda, þ. á m. af viðtölum við kæranda hjá Útlendingastofnun kemur m.a. fram að líkamlegt heilsufar hans sé ágætt en hann kvaðst vera stundum taugaóstyrkur vegna þess að hann sakni fjölskyldu sinnar. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn er varða heilsu hans við meðferð málsins.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að aðstæður hans séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Belgíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Belgíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018),
  • Belgium 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Freedom in the World 2017 – Belgium (Freedom House, 1. september 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Belgium (Amnesty International, 22. febrúar 2018) og
  • The organisation of Reception Facilities in Belgium (European Migration Network, ágúst 2013).

 

Í málinu liggur fyrir að kærandi hefur fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Belgíu. Í framangreindum gögnum kemur fram að stofnun sem fer með umsóknir um alþjóðlega vernd (b. Commissariaat-generaal voor de vluchtelingen en de staatlozen (CGVS)) tekur ákvarðanir um umsóknir um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi og að ákvarðanir hennar séu kæranlegar til stjórnsýsludómstóls í útlendingamálum (b. Raad voor Vreemdelingenbetwistingen) (e. Council for Alien Law Litigation (CALL)). Af gögnum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd kemur fram  að þegar umsækjendur eru endursendir til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar er umsókn þeirra skoðuð sem viðbótarumsókn. Ákvörðun um hvort hún sé tekin til meðferðar skal tekin innan 10 virkra daga. Í þeim tilfellum er umsækjendum veitt húsnæði, mataraðstoð og vasapeningar þegar CGVS hefur tekið viðbótarumsókn þeirra til skoðunar. Þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem settir eru í varðhald við komu til Belgíu eiga rétt á lögfræðiaðstoð án endurgjalds og eiga jafnframt rétt á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu eiga rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds á öllum stigum málsins, þ. á m. við að leggja fram viðbótarumsókn. Að sama skapi er þeim tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá kemur fram að rekin séu úrræði, m.a. miðstöðvar á vegum stjórnvalda vegna andlegra veikinda, en jafnframt kemur fram að langir biðlistar takmarki oft á tíðum aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að þeim.

Kærandi kveðst m.a. óttast að belgísk yfirvöld endursendi hann til heimaríkis hans. Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Belgíu sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð belgískra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Belgíu eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Belgíu brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Belgíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæður kæranda hafa verið raktar. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá fær nefndin ekki séð að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Belgísk stjórnvöld eru bundin af tilskipunum Evrópusambandsins um móttöku og málsmeðferð umsækjanda um alþjóðlega vernd og að mati kærunefndar benda gögn málsins til þess að  þar í landi séu fyrir hendi fullnægjandi málsmeðferð og móttökuaðstæður.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Belgíu. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slíkar sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 27. febrúar 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 3. febrúar 2018. 

Reglur stjórnsýsluréttar

Til stuðnings varakröfu kæranda vísar kærandi m.a. til þess að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Ekkert í málsgögnum bendi til þess að Útlendingastofnun hafi rannsakað né aflað upplýsinga um það ástand sem bíði kæranda í heimaríki hans þegar belgísk stjórnvöld senda hann þangað.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Kærunefnd hefur farið yfir öll gögn í máli kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Er það afstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rökstuðningi niðurstöðu ákvörðunar Útlendingastofnunar þannig að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands 3. febrúar 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Belgíu eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa belgísk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Belgíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

Ívar Örn Ívarsson                                                                                            Þorbjörg Inga Jónsdóttir

                                                                                             

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum