Hoppa yfir valmynd
31. október 2018 Utanríkisráðuneytið

Markmiðið að stuðla að sjálfbærum hagvexti

Í utanríkisráðuneytinu hefur undanfarin misseri verið lögð aukin áhersla á samstarf við atvinnulífið í þróunarsamvinnu. Sérstök áhersla er lögð á samstarfið í drögum að tillögu til þingsályktunar um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019 til 2023, sem verður lögð fram á Alþingi á næstunni. 

„Markmiðið með framlagi Íslands til þróunarsamvinnu er að stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum mannsæmandi atvinnutækifærum í þróunarríkjum til að leggja grunn að aukinni velsæld. Aðkoma atvinnulífsins er mikilvægur þáttur í þessari uppbyggingu og því skiptir samstarf okkar við atvinnulífið miklu máli,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. 

Utanríkisráðherra mun taka þátt í morgunfundi utanríkisráðuneytisins sem haldinn verður þriðjudaginn 6. nóvember á Grand hóteli í Reykjavík kl. 9:00 – 11:00 þar sem nýjar leiðir til samstarfs á sviði þróunarsamvinnu verða kynntar. Fulltrúar fyrirtækja, frjálsra félagasamtaka og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta og heyra nánar um þessa samstarfsmöguleika. 

Utanríkisráðuneytið hefur útfært tvær meginleiðir um samstarf við atvinnulíf í þágu þróunarsamvinnu og Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Annars vegar er um að ræða nýjan samstarfssjóð við atvinnulífið um Heimsmarkmiðin sem ætlaður er samstarfsverkefnum fyrirtækja. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu, með það að markmiði að stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti í fátækum ríkjum. 

Hin leiðin fellur undir samstarf við félagasamtök með aukinni áherslu á þá möguleika í samvinnu við félagasamtök sem tengjast atvinnulífinu og samstarfi félagasamtaka við fyrirtæki um tiltekin verkefni. Þessi verkefni geta beinst að víðtækara sviði tengdum áherslum Íslands í þróunarsamvinnu og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. 

Morgunfundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum