Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2010 Innviðaráðuneytið

Staða forstjóra sameinaðs félags Flugstoða og Keflavíkurflugvallar auglýst

Auglýst hefur verið laus til umsóknar staða forstjóra hins nýstofnaða sameinaða félags Flugstoð og Keflavíkurflugvallar. Umsóknarfrestur er til 3. mars.

Í auglýsingunni kemur fram að forstjóri hafi með höndum yfirstjórn sameinaðs félags og daglega stjórn fyrirtækisins í umboði stjórnar og í samræmi við samþykkta stefnu. Fer forstjóri með yfirumsjón flugleiðsöguþjónustu, flugvallareksturs, tæknimála og stoðstarfsemi og ber ábyrgð á frekari viðskiptaþróun félagsins í samvinnu við framkvæmdastjóra sviða.

Gerð er krafa um háskólapróf í verkfræði, viðskiptum eða lögfræði eða sambærilegum greinum sem nýtast í starfi. Framhaldsmenntun í viðkomandi greinum er talin æskileg. Gert er krafa um víðtæka reynslu af stjórnun verkefna og starfsmanna. Einnig segir í auglýsingunni að leitað sé eftir kraftmiklum stjórnanda með víðtæka stjórnunareynslu og framúrskarandi samskiptahæfileika. Hann þurfi að hafa mikinn framkvæmdavilja og metnað fyrir hönd fyrirtækisins.

Umsóknir sendist Þóri Þorvarðarsyni hjá Hagvangi [email protected] sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 520 4700 eða netfanginu.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum